Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 11. maí 2016 11:30
Arnar Daði Arnarsson
Sara Björk spáir í 1. umferð Pepsi-deildar kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skorar Fanndís tvö mörk í kvöld?
Skorar Fanndís tvö mörk í kvöld?
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Landsliðsfyrirliði íslenska landsliðsins, Sara Björk Gunnarsdóttir spáir fyrir um leikina í 1. umferð Pepsi-deildar kvennar sem hefst í kvöld með fjórum leikjum.

Umferðin lýkur síðan á laugardaginn þegar nýliðarnir mætast á Skaganum, ÍA og FH.

Stjarnan 3 - 1 Þór/KA (í kvöld 18:00)
Hér eru hörkulið að mætast. Stjörnuliðið er sterkara á pappírnum. En bæði lið geta tekið stig frá hvort öðru. Ég held að Stjarnan muni samt taka öll stigin þrjú í Garðabænum.

ÍBV 2 - 2 Selfoss (í kvöld 18:00)
ÍBV er búið að fara vel á stað á undirbúningstímabilinu með því að vinna Lengjubikarinn og eru heitar fyrir tímabilið. Selfoss er með flottan og skemmtilegan hóp og má búast við fjörugum leik. Ég ætla segja að þessi leikur fari 2-2 í Vestmannaeyjum.

Breiðablik 4 - 0 KR (í kvöld 19:15)
Breiðablik eru búnar að vera heitar á undirbúningstímabilinu og eru fullar af sjálfstrausti eftir tímabilið í fyrra. Ég held að þær fari illa með KR liðið í fyrstu umferð og leikurinn endar 4-0 fyrir Blikum. Fanndís Friðriks. skorar tvö og Rakel setur einnig tvö.

Fylkir 0 - 1 Valur (í kvöld 19:15)
Valur er búið að styrkja sig gríðarlega fyrir þetta tímabil og er með lið sem mun klárlega vera berjast um titilinn í ár. Fylkir er einnig með sterkan hóp og verður einnig að berjast á toppnum. Ég held að þetta verði frekar jafn leikur en á endanum skorar Valur mark í lokin og tryggja sér þar með eins marks sigur. Ég ætla að spá því að Marka-Lára skori fyrir Val.

ÍA 1 - 2 FH (á laugardaginn 14:00)
Hér má búast við fjörugum leik þar sem bæði lið eru nýliðar í Pepsi-deildinni í ár. Þetta verður hörkuleikur og bæði lið vilja sýna og sanna að þau eiga heima í Pepsideildinni í ár. Ég ætla samt að tippa á að FH taki þrjú stig með sér frá Skaganum í Fjörðinn!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner