Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 15. október 2014 17:00
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Skoskur dómari með allt niðrum sig
Mynd: Getty Images
Skoski dómarinn Steven McLean er ekki að fara að fá stór alþjóðleg verkefni á næstunni en hann missti öll tök á umspilsleik Ítalíu og Slóvakíu í U21-landsliðum.

Slóvakía átti að fá augljósa vítaspyrnu en með marki úr henni hefði liðið jafnað 2-2 og einvígið samtals í 3-3 og hefði verið á leiðinni í lokakeppnina á reglunni um útivallarmörk.

McLean dæmdi fyrst víti en breytti svo dómnum í hornspyrnu (hvernig hægt var að fá út horn vitum við ekki).

Í kjölfarið á þessu sauð allt upp úr og nokkrir Slóvakar voru sendir upp í stúku. Sjón er sögu ríkari:


Athugasemdir
banner
banner