Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24397 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.04.2025, 22:49

Júlía Ruth í Víking R. (Staðfest)

Víkingur hefur styrkt sig fyrir áframhaldandi átök í Bestu deild kvenna en Júlía Ruth Thasaphong er komin til félagsins frá Grindavík.

FRÉTTIR29.04.2025, 22:00

Fram sækir annan markvörð frá Leikni (Staðfest)

Framarar fundu markvörð undir lok félagaskiptagluggans og aftur leitaði félagið til Leiknis en Bjarki Arnaldarson er genginn í raðir Fram á láni og er kominn með leikheimild.

FRÉTTIR29.04.2025, 20:18

Sveinn Sigurður aftur í Val (Staðfest)

Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson hefur fengið félagaskipti í Val eftir að hafa eytt síðasta árinu hjá Vestra. Hann er að jafna sig eftir erfið meiðsli.

FRÉTTIR29.04.2025, 19:34

Víkingur fær fyrrum leikmann FCK (Staðfest)

Dansk-íraski vængmaðurinn Ali Al-Mosawe hefur samið við Víking R. en hann kemur til félagsins frá Hilleröd í Danmörku. Kaupverðið kemur ekki fram.

FRÉTTIR29.04.2025, 19:02

KFG fær þrjá frá Stjörnunni (Staðfest)

Elvar Máni Guðmundsson, Guðmundur Rafn Ingason og Henrik Máni B. Hilmarsson eru gengnir til liðs við KFG á láni frá Stjörnunni og komnir með leikheimild fyrir fyrsta leik liðsins.

FRÉTTIR29.04.2025, 16:57

Anna Björk heim í KR (Staðfest)

Anna Björk Kristjánsdóttir hefur fengið félagaskipti í KR en hún kemur frá Val. Hún er að snúa aftur á völlinn eftir barnseign. Hún er 35 ára miðvörður sem á að baki 43 landsleiki. Anna Björk er uppalin hjá KR, lék sinn fyrsta leik í Landsbankadeildinni 2004 og lék með liðinu út tímabilið 2008 þegar hún fór í Stjörnuna. Hún var í Stjörnunni út tímabilið 2016 en fór þá erlendis í atvinnumennsku og var erlendis fram á sumarið 2023 ef frá er talið sumarið 2020 þegar hún var á Selfossi. Hún lék með Örebro og LB í Svíþjóð, PSV í Hollandi, Le Havre í Frakklandi og Inter Milan á Ítalíu.

FRÉTTIR29.04.2025, 15:30

Fyrirliði Aftureldingar snýr heim í ÍA (Staðfest)

Sigrún Eva Sigurðardóttir, sem hefur verið fyrirliði Aftureldingar, hefur fengið félagaskipti í uppeldisfélag sitt, ÍA. Hún mun því spila með ÍA í Lengjudeildinni í sumar en hún lék síðast fyrir félagið 2021.

FRÉTTIR29.04.2025, 14:59

Henríetta í Þór/KA (Staðfest)

Þór/KA hefur fengið liðsstyrk því Henríetta Ágústsdóttir er gengin í raðir félagsins á láni frá Stjörnunni. Henríetta verður tvítug eftir tæpan mánuð. Hún er miðjumaður sem uppalin er hjá HK en skipti yfir í Stjörnuna fyrir síðasta tímabil. Hún lenti í slæmum meiðslum árið 2023 og missti af því tímabili. Á síðasta tímabili kom hún við sögu í öllum deildarleikjum Stjörnunnar og skoraði eitt mark. Hún kom við sögu í fyrstu tveimur leikjum Stjörnunnar í ár en var ónotaður varamaður í sigrinum gegn Tindastóli á sunnudag.

FRÉTTIR29.04.2025, 14:30

Breiðablik fær unglingalandsliðskonu frá Keflavík (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið unglingalandsliðskonuna Ölmu Rós Magnúsdóttir í sínar raðir frá Keflavík. Alma Rós er fædd árið 2008 og er gríðarlega efnilegur leikmaður en hún spilaði tíu leiki þegar Keflavík féll úr Bestu deild kvenna í fyrra. Sumarið áður spilaði hún 13 leiki í Bestu deildinni.

FRÉTTIR29.04.2025, 13:40

Snædís María heim í Stjörnuna (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Snædís María Jörundsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar eftir eitt og hálft tímabil með FH í Hafnarfirði. Snædís María er fædd árið 2004 og er uppalin hjá Stjörnunni. Hún lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2019 og á alls að baki 102 KSÍ leiki og 18 mörk. Hún skoraði fimm mörk í 20 leikjum með FH í Bestu deildinni í fyrra.

FRÉTTIR29.04.2025, 13:36

Telma heim í Breiðablik (Staðfest)

Landsliðsmarkmaðurinn Telma Ívarsdóttir er komin heim til Breiðabliks frá Rangers en Fótbolti.net fjallaði um yfirvofandi skipti hennar um liðna helgi. Telma varð Íslandsmeistari með Blikum í fyrra, vann Gullhanskan og í vetur samdi hún við skoska félagið Rangers. Hún fær leikheimild á morgun og má því ekki spila gegn Fram í 3. umferð Bestu deildarinnar í dag. Hún verður hjá Blikum í tvo mánuði og snýr svo aftur til Skotlands.

FRÉTTIR29.04.2025, 13:30

Völsungur fær spænskan miðjumann (Staðfest)

Völsungur hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en nýliðarnir hafa krækt í spænskan miðjumann. Sá heitir Ismael Salmi Yagoub og hefur undanfarin ár spilað í neðri deildum Spánar. Hann er 24 ára og hafa Völsungar mikla trú á því að hann muni hjálpa liðinu í sumar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.