Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24398 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.04.2025, 13:30

Völsungur fær spænskan miðjumann (Staðfest)

Völsungur hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en nýliðarnir hafa krækt í spænskan miðjumann. Sá heitir Ismael Salmi Yagoub og hefur undanfarin ár spilað í neðri deildum Spánar. Hann er 24 ára og hafa Völsungar mikla trú á því að hann muni hjálpa liðinu í sumar.

FRÉTTIR29.04.2025, 12:01

Leiknir sækir annan serbneskan miðvörð (Staðfest)

Leiknir í Breiðholti hefur verið að styrkja hóp sinn fyrir Lengjudeildina sem fer af stað á föstudaginn. Í dag kemur til landsins serbneskur miðvörður, Djorde Vladisavljevic, sem fengið hefur keppnisleyfi með Breiðhyltingum. Honum er ætlað að fylla skarð Andi Hoti sem seldur var til Vals fyrir nokkrum vikum.

FRÉTTIR29.04.2025, 11:25

KR fær efnilegan leikmann frá Fram (Staðfest)

KR hefur fengið ungan og efnilegan leikmann frá Fram en sá heitir Marinó Leví Ottósson og er fæddur árið 2011. Marinó hefur spilað með þriðja flokki Fram og þykir mikið efni. Kristall Máni Ingason, frændi Marinós, sagði hann efnilegasta leikmann landsins þegar hann svaraði spurningum í hinni hliðinni fyrir fimm árum siðan. Hann hefur í vetur verið valinn í hópa sem taka þátt í hæfileikamótun KSÍ.

FRÉTTIR29.04.2025, 11:00

Tindastóll fær Snæfríði Evu frá Val (Staðfest)

Tindastóll hefur fengið ágætis liðsstyrk núna rétt áður en glugginn lokar því Snæfríður Eva Eiríksdóttir hefur gengið í raðir félagsins frá Val. Miðað við heimasíðu KSÍ þá gengur Snæfríður Eva alfarið í raðir Tindastóls frá Val, ekki um lánssamning að ræða.

FRÉTTIR29.04.2025, 10:49

KR fær tvo leikmenn frá Hlíðarenda (Staðfest)

KR hefur fengið tvo leikmenn frá Hlíðarenda til að þétta raðirnar fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar. Karen Guðmundsdóttir, sem lék síðast með KH, hefur fengið félagaskipti í KR. Hún er fædd árið 2003 og lék á sínum tíma þrjá leiki fyrir U16 landsliðið. Hún er uppalin hjá Val. Þá hefur KR fengið Valgerði Grímu Sigurjónsdóttur alfarið frá Val en hún lék á láni með KR í fyrra og seinni hluta tímabilsins 2023.

FRÉTTIR29.04.2025, 10:30

Björgvin Stefáns skiptir í Gróttu (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Björgvin Stefánsson hefur fengið félagaskipti í Gróttu sem leikur í 2. deild. Björgvin skipti yfir í Þrótt Reykjavík fyrir síðasta tímabil en kom þar ekkert við sögu. Hann spilaði með KFK í 3. deild síðasta sumar og skoraði þar sjö mörk í 17 leikjum.

FRÉTTIR28.04.2025, 17:13

Jóhann Kanfory í Leikni (Staðfest)

Leiknir í Breiðholti heldur áfram að bæta við leikmannahóp sinn en kantmaðurinn Jóhann Kanfory Tjörvason hefur gengið í raðir liðsins frá Víkingi Reykjavík. Hann er 18 ára gamall. <i>„Jóhann hefur gengið til liðs við okkur Leiknisfólk til tveggja ára frá Víking,"</i> segir á Instagram síðu Leiknis.

FRÉTTIR28.04.2025, 15:15

Enski boltinn - Liverpool er Englandsmeistari 2025 (Staðfest)

Liverpool vann í gær sinn 20. Englandsmeistaratitil. Þetta hafði verið lengi í loftinu en Liverpool er búið að vera langbesta liðið þetta tímabilið. Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í <i>Enski boltinn</I> hlaðvarpinu í dag og gerðu upp magnað tímabil hjá Liverpool. Einnig var rætt um komandi Evrópuleiki og aðeins farið í spænska boltann í lokin.

FRÉTTIR28.04.2025, 14:37

Tumi Fannar í Fylki (Staðfest)

Fylkir hefur fengið Tuma Fannar Gunnarsson á láni frá Breiðabliki út komandi tímabil. Tumi Fannar er tvítugur miðjumaður sem lék fjóra leiki með Breiðabliki á síðasta tímabili þegar liðið varð Íslandsmeistari. Tumi kom sér á blað með Breiðabliki í bikarsigrinum á Fjölni fyrir rúmri viku síðan. Hann mun spila í Lengjudeildinni í sumar, með liði Fylkis sem ætlar sér að vinna deildina. Fyrsta umferð Lengjudeildarinnar fer að mestu fram á föstudagskvöld og þá heimsækir Fylkir lið Njarðvíkur.

FRÉTTIR28.04.2025, 06:00

Samúel Már heim í KV (Staðfest)

Samúel Már Kristinn er mættur aftur heim í KV á láni frá Þrótti R. en þetta kemur fram í tilkynningu frá KV-mönnum.

FRÉTTIR27.04.2025, 14:12

Óli Íshólm í Leikni (Staðfest)

Markvörðurinn Ólafur Íshólm Ólafsson hefur gengið til liðs við Leikni í Breiðholti. Ólafur, sem hefur yfirgefið Fram, skrifaði í dag undir samning til tveggja ára. Fram er í markmannsleit þar sem Ólafur Íshólm Ólafsson óskaði eftir því að fá að fara og fékk þá beiðni uppfyllta.

FRÉTTIR27.04.2025, 12:12

Formaðurinn tilbúinn að vera til taks og skiptir yfir í Fram (Staðfest)

Fram er í markmannsleit þar sem Ólafur Íshólm Ólafsson óskaði eftir því að fá að fara og fékk þá beiðni uppfyllta. Ólafur hafði verið aðalmarkmaður Fram frá komu sinni árið 2019 en er nú að halda annað. Viktor Freyr Sigurðsson er í dag aðalmarkmaður Fram og til vara fyrir hann er 2. flokks markmaðurinn Þorsteinn Örn Kjartansson.

FRÉTTIR25.04.2025, 14:13

Króatískur framherji til Keflavíkur (Staðfest)

Króatíski framherjinn Marin Mudrazija hefur gengið í raðir Keflavíkur. Hann er 29 ára gamall og er kominn með leikheimild en það er vika í að Lengjudeildin fer í gang. Hann kemur til Keflavíkur frá Feronikeli í Kósovó en hann hefur flakkað um undanfarin ár og verið hjá liðum í Króatíu, Indlandi, Singapúr og Rúmeníu.

FRÉTTIR25.04.2025, 10:00

Frederik Schram snýr aftur til Vals (Staðfest)

Markvörðurinn Frederik Schram er kominn aftur til Vals en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Ástæða endurkomunnar er sú að Ögmundur Kristinsson hefur ekki náð sér að fullu eftir meiðsli, þrátt fyrir mikinn vilja og mikla vinnu. <i>„Það er auðvitað alltaf erfitt þegar menn eru að glíma við langvarandi meiðsli og við erum virkilega svekktir með stöðuna á Ögmundi. Það er samt enginn svekktari en Ömmi sjálfur. Hann hefur lagt allt í að ná sér góðum, en stundum fara hlutirnir ekki eins og maður vonast eftir. Hann hefur verið mjög faglegur í öllu síðan hann kom til okkar og lyft mörgu á hærra level með sínu flotta viðhorfi,"</i> segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals. <i>„Það jákvæða við stöðuna er þó að Stefán Þór (Ágústsson), ungur og efnilegur markvörður, hefur fengið tækifæri í vetur og staðið sig mjög vel í byrjun móts. Ömmi hefur hjálpað Stefáni mikið og á stórt hrós skilið fyrir það hvernig hann hefur stutt við Stefán. Svo eigum við líka fleiri unga og efnilega markmenn í félaginu sem við horfum til eftir nokkur ár.“</i>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.