Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24399 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.04.2025, 06:00

HK fær Karlottu frá Stjörnunni (Staðfest)

HK hefur fengið öflugan liðsstyrk til liðs við sig fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna, eftir að hafa misst af öðru sætinu í fyrra með fjögurra stiga mun.

FRÉTTIR23.04.2025, 10:30

Ellie Moreno í Þór/KA (Staðfest)

Þór/KA tilkynnti í dag að búið væri að semja við bandaríska leikmanninn Ellie Moreno út yfirstandandi tímabil. Moreno kemur til Akureyrar frá Flórída. Hún er sóknar/miðjumaður og hefur leyst stöður framarlega á vellinum með liði UCF háskólans í Bandaríkjunum. Þór/KA er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Bestu deildinni. Moreno gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Val næsta sunnudag.

FRÉTTIR23.04.2025, 07:00

Viktor Már í KV (Staðfest)

Viktor Már Heiðarsson er genginn til liðs við KV en hann kemur til liðsins frá Magna. Viktor er uppalinn í Einherja og hóf meistaraflokksferil sinn þar árið 2017 í 3. deild. Hann á einn leik með KA í efstu deild árið eftir en færði sig síðan til Magna.

FRÉTTIR22.04.2025, 17:51

ÍBV kaupir Valor aftur frá KR (Staðfest)

ÍBV og KR hafa náð samkomulagi um að Vicente Valor gangi aftur til liðs við ÍBV. ÍBV kaupir Valor til baka frá KR sem hélt í Vesturbæinn eftir síðasta tímabil Valor er 26 ára og yfirgaf ÍBV eftir síðustu leiktíð og hefur nú snúið aftur nokkrum mánuðum síðar.

FRÉTTIR22.04.2025, 06:00

Fram fær Söru aftur frá Blikum (Staðfest)

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir er gengin aftur til liðs við Fram á láni eftir að hafa skorað 2 mörk í 7 leikjum með liðinu í Lengjudeildinni í fyrra.

FRÉTTIR19.04.2025, 06:00

Ólína Helga í FHL (Staðfest)

Ólína Helga Sigþórsdóttir er gengin til liðs við FHL frá Völsungi. Ólína er 18 ára miðjumaður en hún lék með Völsungi í tvö ár en hún er uppalin í Þór á Akureyri.

FRÉTTIR17.04.2025, 06:00

Tara Jóns alfarið í Gróttu (Staðfest) - Hulda Ösp einnig mætt

Tara Jónsdóttir er alfarið gengin til liðs við Gróttu en hún kemur frá Víkingi. Tara er uppalin í Víkingi en hún er fædd árið 2001. Hún spilaði 22 leiki í deild og bikar með Víkingi árið 2023 þegar liðið vann Lengjudeildina og Mjólkurbikarinn. Hún hefur leikið 110 leiki og skorað 8 mörk

FRÉTTIR16.04.2025, 11:48

FHL fékk nýjan leikmann rétt fyrir stóra daginn (Staðfest)

FHL hefur styrkt lið sitt rétt fyrir fyrsta leik í Bestu deildinni. Alexia Czerwien hefur gengið til liðs við félagið. Lexi, eins og hún er kölluð, kemur frá Bandaríkjunum og byrjaði ung að æfa fótbolta. Hún er fjölhæfur miðjumaður sem er sterk bæði í sókn og vörn.

FRÉTTIR16.04.2025, 11:27

Adam Páls kominn heim í Val (Staðfest) - Má spila gegn Grindavík

Adam Ægir Pálsson hefur fengið félagaskipti í Val en hann er mættur aftur eftir lánsdvöl á Ítalíu þar sem hann var á mála hjá tveimur félögum í þriðju efstu deild. Adam fór til Perugia síðasta sumar og var þar út janúar. Í lok félagaskiptagluggans, eftir lítinn spiltíma, skipti hann yfir til Novara en þar fékk hann líka lítið að spila. Hann er því mættur heim úr láninu og er kominn með leikheimild fyrir leik Vals gegn Grindavík í bikarnum.

FRÉTTIR16.04.2025, 06:00

Víðir fær Róbert Bagguley og Aron Hákonar frá grönnunum (Staðfest)

Víðir hefur nælt í tvo leikmenn á láni frá nágrönnum sínum. Aron Hákonarson er genginn til liðs við félagið á láni frá Keflavík. Hann er 21 árs gamall varnarmaður. Hann hefur spilað fjóra deildarleiki með Keflavík. Tvo í Bestu deildinni 2023 og tvo í Lengjudeildinni síðasta sumar. Hann var í byrjunarliðinu þegar Víðir lagði Hörð í 1. umferð Mjókurbikarsins í ár.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.