Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24400 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.02.2025, 17:33

Vestri fær eistneskan Svía í sóknina (Staðfest)

Vestri hefur fengið til sín sóknarmanninn Kristoffer Grauberg Lepik frá IK Oddevold í Svíþjóð fyrir átökin sem eru framundan í Bestu deildinni. Kristoffer er 24 ára, fæddur í Stokkhólmi og gerir tveggja ára samning.

FRÉTTIR27.02.2025, 15:52

Kanadískur kantmaður í Þór (Staðfest)

Þór tilkynnti í dag um komu nýs leikmanns til félagsins. Clément Bayiha hefur srifað undir samning við Þór og verður með liðinu næstu tvö tímabil. Hann er kanadískur kantmaður sem lék síðast með York United í kanadísku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig leikið í MLS deildinni í Bandaríkjunum og norsku úrvalsdeildinni. Þá á hann að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Kanada. Hann á rætur að rekja til Kamerún. Hann var í rúmt hálft ár liðsfélagi Róberts Orra Þorkelssonar hjá CF Montreal.

FRÉTTIR27.02.2025, 12:25

Magnús Orri Schram orðinn formaður hjá KR (Staðfest)

Aðalfundur knattspyrnudeildar KR fór fram í félagsheimili KR í gær. Þar lét Páll Kristjánsson af formennsku en hann staðfesti það fyrir um mánuði síðan að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri. <i>„Það er mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og ég tel að tími sé kominn á að hleypa nýjum og ferskum formanni að,"</i> sagði Páll í yfirlýsingu.

FRÉTTIR27.02.2025, 06:00

FHL fær bandarískan miðjumann (Staðfest)

Anna Hurley er gengin til liðs við FHL og mun leika með liðinu í Bestu deild. Hurley er bandarískur miðjumaður en hún hefur leikið í heimalandinu undanfarið.

FRÉTTIR26.02.2025, 11:40

Tiago til Kína (Staðfest)

Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Fernandes er genginn í raðir kínverska félagsins DN United. Tiago er 29 ára miðjumaður sem hefur spilað á Íslandi síðan 2018. Þá gekk hann í raðir Fram og var í tvö tímabil, hann spilaði ekkert 2020 og spilaði svo 2021 með Grindavík. Hann sneri svo aftur í Fram og var í þrjú tímabil með liðinu í efstu deild. Hann yfirgaf Fram eftir síðasta tímabil þrátt fyrir að hafa verið í stóru hlutverki á síðasta tímabili. Þá lék hann sem djúpur miðjumaður en það er meira í hans eðli að sækja og skapa færi. Tímabilið 2022 var frábært hjá honum, raðaði inn stoðsendingum og var orðaður við betri lið deildarinnar.

FRÉTTIR26.02.2025, 07:00

Heiðar Máni í Hauka (Staðfest)

Heiðar Máni Hermannsson er genginn til liðs við Hauka frá FH en hann gerði tveggja ára samning við félagið í gær.

FRÉTTIR25.02.2025, 18:56

Jóan Símun aftur í KA (Staðfest)

Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Símun Edmundsson er genginn aftur í raðir KA aðeins rúmu ári eftir að hafa yfirgefið félagið en þetta kemur fram í tilkynningu KA í dag.

FRÉTTIR25.02.2025, 18:03

Brynjar Gauti í Fjölni (Staðfest)

Brynjar Gauti Guðjónsson er genginn í raðir Fjölnis, var tilkynntur hjá félaginu rétt í þessu. Hann var fyrst orðaður við Fjölni í gær.

FRÉTTIR25.02.2025, 16:46

Baldvin Berndsen í ÍA (Staðfest) - Gæti mætt Fjölni strax á morgun

Baldvin Þór Berndsen var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður ÍA. Frá þessu greina Skagamenn á samfélagsmiðlum. Baldvin skrifar undir samning út tímabilið 2027. ÍA kaupir hann frá Fjölni þar sem hann var samningsbundinn út komandi tímabil. Baldvin er miðvörður sem fæddur árið 2004. Hann var á beknum í liði ársins í Lengjudeildinni síðasta sumar. Hann er uppalinn hjá Fjölni, lék með venslaliðinu Vængjum Júpíters sumarið 2021, lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki ÍA 2022, var á láni hjá Ægi tímabilið 2023 og var lykilmaður í liði Fjölnis í fyrra.

FRÉTTIR24.02.2025, 23:11

Björgvin Brimi kominn heim í Gróttu (Staðfest)

Björgvin Brimi Andrésson er kominn aftur heim í Gróttu eftir fjögur ár hjá KR. Hann er fæddur á Seltjarnarnesi og æfði með Gróttu allt þar til komið var í 4. flokk, þegar hann skipti yfir til KR í Vesturbænum.

FRÉTTIR24.02.2025, 16:59

Þorleifur rifti við Debrecen (Staðfest)

Þorleifur Úlfarsson hefur rift samningi sínum við Debrecen í Ungverjalandi og er því laus allra mála. Þorleifur samdi við félagið fyrir um ári síðan en náði ekki að stimpla sig almennilega inn eftir komuna frá Houston Dynamo og kom einungis við sögu í þremur deildarleikjum. Þorleifur hefur glímt við meiðsli stóran hluta af veru sinni í Ungverjalandi og er vonandi að hann fari að ná sér af þeim.

FRÉTTIR23.02.2025, 23:30

Clement rekinn frá Rangers (Staðfest)

Rangers hefur ákveðið að reka Philippe Clement úr þjálfarasætinu eftir 16 mánuði við stjórnvölinn. Gengi félagsins hefur ekki verið nægilega gott heimafyrir þrátt fyrir flottan árangur í Evrópudeildinni.

FRÉTTIR23.02.2025, 10:30

Van Persie mættur aftur heim til Feyenoord (Staðfest)

Robin van Persie var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri Feyenoord. Hann kemur til félagsins frá Heerenveen. Markavélin Van Persie er 41 árs Hollendingur sem hóf leikmannaferilinn hjá Feyenoord og lauk honum þar einnig. Eftir veruna hjá Feyeenoord á árunum 1999-2004 fór hann til Arsenal, svo til Manchester United og loks til Fenerbahce áður en hann sneri aftur til Hollands. Hans fyrstu þjálfarastörf voru hjá yngri flokkum Feyenoord og sem aðstoðarmaður Dick Advocaat í þjálfateymi Feyenoord. Hans fyrsta aðalþjálfarastarf var hjá Heerenveen en hann er nú kominn til Feyenoord og skrifar undir til 2027. Hann tekur við Dananum Brian Priske sem var látinn fara nýlega. Rene Hake, sem hefur verið í þjálfarateymi Erik ten Haag, aðstoðar Van Persie hjá Feyenoord. Feyenoord endaði í 2. sæti hollensku deildarinnar í fyrra undir stjórn Arne Slot. Liðið er í dag í 3. sæti ideildarinnar, ellefu stigum á eftir Ajax og níu stigum á eftir PSV. Framundan er barátta í deildinni og einvígi gegn Inter í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.