Fotbolti.net
24.02.25 - 19:24
Ívan Guðjón Baldursson

Hákon Atli aftur til Dalvíkur (Staðfest)

Hákon Atli aftur til Dalvíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Dalvík/Reynir

Hákon Atli Aðalsteinsson er kominn aftur til Dalvíkur/Reynis og mun leika fyrir liðið á láni í ár.
Hákon Atli kemur á lánssamningi frá KA líkt og í fyrra, þegar hann kom til Dalvíkur/Reynis um mitt sumar og stóð sig vel.

Honum tókst þó ekki að forða Dalvíkingum frá falli úr Lengjudeildinni og mun því reyna fyrir sér í 2. deildinni komandi sumar.

Hákon er fæddur 2004 og uppalinn hjá KA en hefur einnig leikið fyrir Hamrana og Völsung.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.