Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25105 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR28.02.2025, 14:40

Albi tekur slaginn með Völsungi í Lengjudeildinni (Staðfest)

Völsungur tilkynnti í dag að Inigo Albizuri Arruti, eða einfaldlega Albi, væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og mun hann taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Albi er þrítugur miðvörður sem sýndi frábæra frammistöðu og mikla leiðtogahæfni á vellinum í fyrra. Hann var valinn í lið ársins í 2. deild hér á Fótbolti.net og hjálpaði Völsungi að komast upp í lengjudeildina. Í tilkynningu Völsungs stendur að hann ætli sér að spila enn betur í ár.

FRÉTTIR28.02.2025, 11:52

Víðir Þorvarðar tekur slaginn með ÍBV (Staðfest)

Víðir Þorvarðarson hefur skrifað undir samning við ÍBV og verður hann með liðinu í Bestu deildinni í sumar. Víðir er fæddur árið 1992 og á að baki 140 leiki í efstu deild og 22 mörk. Hann er Eyjamaður en hefur einnig leikið með Stjörnunni, Fylki og Þrótti á sínum ferli. Hann lék með ÍBV tímabilið 2020 en var svo með KFS til ársins 2024 þegar hann sneri aftur í ÍBV. Hann skoraði tvö mörk í 13 leikjum á síðasta tímabili þegar ÍBV vann sér sæti í Bestu deildinni.

FRÉTTIR28.02.2025, 10:19

Daði Berg í Vestra (Staðfest)

Daði Berg Jónsson, ungur leikmaður Víkings, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til Vestra. Verður hann lánaður þangað út komandi keppnistímabil. <b>Uppfært 11:03:</b> Félögin hafa staðfest tíðindin. Í tilkynningu Vestra er hann titlaður sem Súðvíkingur og hann boðinn velkominn 'heim'.

FRÉTTIR28.02.2025, 07:00

Silvan þjálfar Uppsveitir (Staðfest)

Uppsveitir hafa samið við Silvan Cokaj um að þjálfa meistaraflokk í sumar en hann er 37 ára gamall Albani sem hefur búið á Íslandi í um 6 ár.

FRÉTTIR27.02.2025, 17:33

Vestri fær eistneskan Svía í sóknina (Staðfest)

Vestri hefur fengið til sín sóknarmanninn Kristoffer Grauberg Lepik frá IK Oddevold í Svíþjóð fyrir átökin sem eru framundan í Bestu deildinni. Kristoffer er 24 ára, fæddur í Stokkhólmi og gerir tveggja ára samning.

FRÉTTIR27.02.2025, 15:52

Kanadískur kantmaður í Þór (Staðfest)

Þór tilkynnti í dag um komu nýs leikmanns til félagsins. Clément Bayiha hefur srifað undir samning við Þór og verður með liðinu næstu tvö tímabil. Hann er kanadískur kantmaður sem lék síðast með York United í kanadísku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig leikið í MLS deildinni í Bandaríkjunum og norsku úrvalsdeildinni. Þá á hann að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Kanada. Hann á rætur að rekja til Kamerún. Hann var í rúmt hálft ár liðsfélagi Róberts Orra Þorkelssonar hjá CF Montreal.

FRÉTTIR27.02.2025, 12:25

Magnús Orri Schram orðinn formaður hjá KR (Staðfest)

Aðalfundur knattspyrnudeildar KR fór fram í félagsheimili KR í gær. Þar lét Páll Kristjánsson af formennsku en hann staðfesti það fyrir um mánuði síðan að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri. <i>„Það er mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og ég tel að tími sé kominn á að hleypa nýjum og ferskum formanni að,"</i> sagði Páll í yfirlýsingu.

FRÉTTIR27.02.2025, 06:00

FHL fær bandarískan miðjumann (Staðfest)

Anna Hurley er gengin til liðs við FHL og mun leika með liðinu í Bestu deild. Hurley er bandarískur miðjumaður en hún hefur leikið í heimalandinu undanfarið.

FRÉTTIR26.02.2025, 11:40

Tiago til Kína (Staðfest)

Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Fernandes er genginn í raðir kínverska félagsins DN United. Tiago er 29 ára miðjumaður sem hefur spilað á Íslandi síðan 2018. Þá gekk hann í raðir Fram og var í tvö tímabil, hann spilaði ekkert 2020 og spilaði svo 2021 með Grindavík. Hann sneri svo aftur í Fram og var í þrjú tímabil með liðinu í efstu deild. Hann yfirgaf Fram eftir síðasta tímabil þrátt fyrir að hafa verið í stóru hlutverki á síðasta tímabili. Þá lék hann sem djúpur miðjumaður en það er meira í hans eðli að sækja og skapa færi. Tímabilið 2022 var frábært hjá honum, raðaði inn stoðsendingum og var orðaður við betri lið deildarinnar.

FRÉTTIR26.02.2025, 07:00

Heiðar Máni í Hauka (Staðfest)

Heiðar Máni Hermannsson er genginn til liðs við Hauka frá FH en hann gerði tveggja ára samning við félagið í gær.

FRÉTTIR25.02.2025, 18:56

Jóan Símun aftur í KA (Staðfest)

Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Símun Edmundsson er genginn aftur í raðir KA aðeins rúmu ári eftir að hafa yfirgefið félagið en þetta kemur fram í tilkynningu KA í dag.

FRÉTTIR25.02.2025, 18:03

Brynjar Gauti í Fjölni (Staðfest)

Brynjar Gauti Guðjónsson er genginn í raðir Fjölnis, var tilkynntur hjá félaginu rétt í þessu. Hann var fyrst orðaður við Fjölni í gær.

FRÉTTIR25.02.2025, 16:46

Baldvin Berndsen í ÍA (Staðfest) - Gæti mætt Fjölni strax á morgun

Baldvin Þór Berndsen var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður ÍA. Frá þessu greina Skagamenn á samfélagsmiðlum. Baldvin skrifar undir samning út tímabilið 2027. ÍA kaupir hann frá Fjölni þar sem hann var samningsbundinn út komandi tímabil. Baldvin er miðvörður sem fæddur árið 2004. Hann var á beknum í liði ársins í Lengjudeildinni síðasta sumar. Hann er uppalinn hjá Fjölni, lék með venslaliðinu Vængjum Júpíters sumarið 2021, lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki ÍA 2022, var á láni hjá Ægi tímabilið 2023 og var lykilmaður í liði Fjölnis í fyrra.

FRÉTTIR25.02.2025, 15:41

Ismael tekur við Blackburn

Valerien Ismael, fyrrum stjóri Barnsley, West Brom og Watford, er að taka við sem stjóri Blackburn Rovers. Frakkinn mun stýra Blackburn gegn Norwich á laugardaginn. Hann tekur við af John Eustace sem lét af störfum fyrr í þessum mánuði til að taka við Derby County.

FRÉTTIR24.02.2025, 23:11

Björgvin Brimi kominn heim í Gróttu (Staðfest)

Björgvin Brimi Andrésson er kominn aftur heim í Gróttu eftir fjögur ár hjá KR. Hann er fæddur á Seltjarnarnesi og æfði með Gróttu allt þar til komið var í 4. flokk, þegar hann skipti yfir til KR í Vesturbænum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.