Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25109 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR20.02.2025, 14:13

Atli Sigurjóns óvænt áfram hjá KR (Staðfest)

Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er því samningsbundinn út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil og hefur hann því verið samningslaus í þrjá mánuði. Atli er örvfættur kantmaður sem fæddur er árið 1991. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur einnig leikið með KR og Breiðabliki á sínum ferli.

FRÉTTIR19.02.2025, 16:38

Arnór Sig til Malmö (Staðfest)

Arnór Sigurðsson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður sænsku meistaranna í Malmö. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Blackburn var rift á dögunum. Hann skrifar undir samning sem gildir út næstu þrjú tímabil og verður í treyju númer 8. Skagamaðurinn er 25 ára gamall og á að baki 34 landsleiki. Hann hefur verið talsvert frá síðasta hálfa árið, bæði vegna meiðsla og veikinda en er að snúa aftur á völlinn. Í 41 leik með Blackburn skoraði Arnór átta mörk og lagði upp fimm.

FRÉTTIR19.02.2025, 11:07

Gylfi sá dýrasti í sögunni - „Hefði viljað sjá pakkadíl frá Val"

Gylfi Þór Sigurðsson varð í gær dýrasti leikmaður sem íslenskt félag hefur keypt þegar Víkingur greiddi tæplega 20 milljónir króna til Vals fyrir hann. Fyrir var Óli Valur Ómarsson sá dýrasti en Breiðablik keypti hann frá sænska félaginu Sirius í vetur og Benedikt Warén var sá dýrasti ef horft er í félagaskipti milli íslenskra félaga, en hann var keyptur til Stjörnunnar frá Vestra í vetur. Gylfi er einnig sá Íslendingur sem erlent félag hefur greitt hæstu upphæðina fyrir en Everton greiddi 45 milljónir punda þegar félagið keypti hann frá Swansea sumarið 2017. Gylfi er 35 ára miðjumaður og atburðarás síðustu daga var á þá leið að Valur taldi best í stöðunni að samþykkja tilboð í hann. Gylfi skoraði 11 mörk í 19 deildarleikjum með Val á síðasta tímabili.

FRÉTTIR19.02.2025, 09:51

Aida Kardovic til FHL (Staðfest)

FHL heldur áfram að safna liði fyrir komandi átök í Bestu deildinni. FHL vann Lengjudeildina í fyrra og er mætt í deild þeirra bestu. Í morgun greindi félagið frá komu Aidu Karodvic til félagsins. Hún er þriðji leikmaðurinn sem liðið fær til sín í vetur. Aida er fjölhæfur miðjumaður sem getur líka spilað allar fremstu stöðurnar á vellinum. Aida spilaði í Creighton háskólanum við góðan orðstír auk þess sem hún á 6 leiki með U19 landsliði Serbíu. Við bjóðum Aidu velkomna í FHL hópinn.

FRÉTTIR19.02.2025, 06:00

María Lena í HK (Staðfest)

María Lena Ásgeirsdóttir snýr aftur til HK eftir tveggja ára fjarveru en hún lék síðast með Sindra í 2. deild í fyrra.

FRÉTTIR18.02.2025, 21:39

Gonzalo Zamorano yfirgefur Selfoss (Staðfest)

Selfoss hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að Gonzalo Zamorano mun ekki spila með meistaraflokki karla í sumar eftir að hafa verið besti leikmaður liðsins í 2. deildinni í fyrra.

FRÉTTIR18.02.2025, 15:05

ÍA krækir í unglingalandsliðsmann frá Haukum (Staðfest)

ÍA heldur áfram að sækja unga leikmenn þennan veturinn því í dag var greint frá því að Jón Viktor Hauksson væri genginn í raðir félagsins. Jón Viktor er fæddur árið 2009 og kemur frá Haukum. Hann er uppalinn hjá Haukum og hefur stigið sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann spilaði tvo leiki í 2. deild síðasta sumar og einn leik í Fótbolti.net bikarnum. Í þeim leik, sem var gegn Selfossi, skoraði Jón Viktor sitt fyrsta meistaraflokksmark.

FRÉTTIR18.02.2025, 11:54

Gylfi Þór í Víking (Staðfest)

Gylfi Þór Sigurðsson er genginn í raðir Víkings en félagið kaupir hann frá Val. Félagið þakkar Val fyrir heiðarleg og goð samskipti í kringum kaupin. Valur samþykkti einnig tilboð frá Breiðabliki í Gylfa en hann valdi að ganga í raðir Víkings. Kaupverðið er tæplega 20 milljónir. Gylfi er 35 ára miðjumaður, hann er besti- og markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. Hann hafði verið hjá Val í tæplega ár. Hann skoraði 11 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili og var í liði tímabilsins. Víkingur reyndi að fá Gylfa þegar hann kom í íslenska boltann á síðasta ári en þá varð Valur fyrir valinu.

FRÉTTIR18.02.2025, 10:13

Gunnar Jónas framlengir við Vestra (Staðfest)

Vestri tilkynnti í dag að Gunnar Jónas Hauksson (1999) væri búinn að framlengja samning sinn við Vestra og mun taka slaginn með liðinu í sumar. Þetta eru gleðifréttir fyrir Vestra því Gunnar Jónas kom öflugur inn í lið Vestra á síðasta tímabili. Hann skoraði eitt af eftirminnilegri mörkum síðasta sumars þegar hann jafnaði fyrir Vestra gegn Víkingi á Víkingsvelli. Bakvörðurinn skoraði tvö mörk í 21 deildarleik.

FRÉTTIR17.02.2025, 19:30

Frá HK aftur til Kolding (Staðfest)

Danski markvörðurinn Christoffer Petersen er farinn frá HK eftir að samningurinn hans rann út og er genginn til liðs við Kolding í heimalandinu.

FRÉTTIR17.02.2025, 17:41

Birkir Jakob í Val (Staðfest)

Birkir Jakob Jónsson er genginn í raðir Vals en hann kemur frá ítalska stórliðinu Atalanta þar sem hann hefur verið í tæp fjögur ár. Birkir skrifar undir fjögurra ára samning við Val. Hann var orðaður við Val fyrir um ári síðan en þá varð lendingin að hann yrði áfram úti hjá Atalanta. Birkir Jakob er framherji sem var í yngri flokkum Fram, Fylkis og Breiðabliks áður en hann fór til Ítalíu árið 2021. Í hlaðvarpsþættinum <i>Dr. Football</I> var sagt að Breiðablik hefði einnig haft áhuga á að fá Birki Jakob í sínar raðir. Hann er fæddur árið 2005 og á að baki 11 leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann hefur glímt við mikið af meiðslum síðustu misseri.

FRÉTTIR17.02.2025, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Pirraðir Grikkir í Helsinki

Víkingur vann frækinn sigur gegn Panathinaikos, Gylfi er sagður vilja fara frá Val og þá er nóg að gerast í enska boltanum. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR17.02.2025, 17:00

Samningi Arnórs við Blackburn rift (Staðfest)

Arnór Sigurðsson hefur fengið samningi sínum við Blackburn Rovers rift. Þetta tilkynnti Blackburn rétt í þessu og er tekið fram að félagið og Arnór hefðu komist að sameiginlegri niðurstöðu. Arnór var samningsbundinn félaginu fram í júní en hafði gefið það út að hann myndi ekki framlengja samning sinn. Eftir að janúarglugginn lokaði var leikmannahópur Blackburn fyrir seinni hluta tímabilsins opinberaður og þar var nafn Arnórs hvergi. Arnór var mjög ósáttur við enska félagið og lét þá óánægju sína í ljós í viðtali við <i>Vísi</I>.

FRÉTTIR17.02.2025, 14:26

Danijel Djuric til Króatíu (Staðfest)

Víkingur er búinn að selja Danijel Dejan Djuric til króatíska félagsins NK Istra. Það má lesa út frá því að Danijel hefur fengið félagaskipti til Króatíu á heimasíðu knattspyrnusambandsins. Fjallað var um áhuga Istra á Danijel fyrr í dag og á æfingu Víkinga í Aþenu sást þegar Danijel var dreginn til hliðar og ræddi þar við þjálfarann Sölva Geir Ottesen.

FRÉTTIR17.02.2025, 12:00

Olga Ingibjörg lánuð í Fram (Staðfest)

Olga Ingibjörg Einarsdóttir er gengin til liðs við Fram að láni frá Breiðabliki. Olga er 18 ára gamall miðvörður sem er uppalin hjá Blikum og á, þrátt fyrir ungan aldur tæplega 70 meistaraflokksleiki, flesta í Lengjudeildinni með Augnabliki og svo HK þar sem hún spilaði sem lánsmaður á síðasta tímabili.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.