Chelsea ætlar sér að vinna baráttuna um Guehi - Liverpool og Man City á eftir Frimpong - Tveir orðaðir við Arsenal - Al-Ahli gæti gert Vinicius að...
   mán 17. febrúar 2025 17:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Birkir Jakob í Val (Staðfest)
Birkir Jakob.
Birkir Jakob.
Mynd: Valur
Við hlið Hauks Páls aðstoðarþjálfara Vals.
Við hlið Hauks Páls aðstoðarþjálfara Vals.
Mynd: Valur
Birkir Jakob Jónsson er genginn í raðir Vals en hann kemur frá ítalska stórliðinu Atalanta þar sem hann hefur verið í tæp fjögur ár. Birkir skrifar undir fjögurra ára samning við Val. Hann var orðaður við Val fyrir um ári síðan en þá varð lendingin að hann yrði áfram úti hjá Atalanta.

Birkir Jakob er framherji sem var í yngri flokkum Fram, Fylkis og Breiðabliks áður en hann fór til Ítalíu árið 2021. Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football var sagt að Breiðablik hefði einnig haft áhuga á að fá Birki Jakob í sínar raðir.

Hann er fæddur árið 2005 og á að baki 11 leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann hefur glímt við mikið af meiðslum síðustu misseri.

„Birkir Jakob er stór og sterkur strákur og gríðarlegt efni. Hann hefur verið í tæp fjögur ár í sterkri akademíu hjá Atalanta á Ítalíu þar sem hann hefur staðið sig vel. Hann hefur eiginleika sem leikmaður sem eiga eftir að styrkja hjá okkur sóknarlínuna. Við hlökkum mikið til þess að sjá hann í valsbúningnum næstu árin,“ segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals.

„Ég er mjög spenntur enda taldi ég góðan tíma núna til þess að koma heim og fara í fullorðinsfótbolta. Valur er auðvitað risa klúbbur og þarna er fullt af eldri og reyndari leikmönnum sem er hægt að læra helling af," er haft eftir BIrki Jakobi í tilkynningu Vals

Hann lýsir sjálfum sér sem sóknarsinnuðum leikmanni sem geti spilað uppi á topp og úti á kanti og hann er með skýr markmið fyrir sumarið.

„Ég vil bæta mig sem leikmann og nýta allar þær mínútur sem ég mun fá. Það verður geggjað að læra af Patrick Pedersen. Ég hlakka til," segir Birkir.
Athugasemdir
banner