Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24403 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR03.02.2025, 12:20

Dortmund krækir í Daniel Svensson (Staðfest)

Dortmund hefur fengið sænska vinstri bakvörðinn Daniel Svensson en hann kemur frá danska félaginu. Svensson kemur á láni út tímabilið með kaupmöguleika sem getur breyst í kaupmöguleika ef Svensson uppfyllir ákveðin skilyrði á meðan lánsdvölinni stendur. Svensson hefur spilað allar mínúturnar með Nordsjælland það sem af er tímabili og er orðinn sænskur landsliðsmaður.

FRÉTTIR03.02.2025, 10:55

Iling-Junior til Boro (Staðfest) - Iheanacho á leiðinni

Middlesbrough hefur fengið kantmanninn Samuel Iling-Junior á láni frá Aston Villa út tímabilið. Iling-Junior kom til Villa frá Juventus síðasta sumar á sama tíma og Douglas Luiz var keyptur til Juve frá Villa. Iling-Junior lék með Bologna á Ítalíu fyrri hluta tímabilsins en fer nú til Middlesbrough í ensku Championship deildinni. Hann er 21 árs og er uppalinn hjá Chelsea en hélt til Juventus árið 2020. Hann skoraði tvö mörk í 16 leikjum hjá Bologna.

FRÉTTIR03.02.2025, 10:13

Brighton kaupir Tzimas frá Nürnberg (Staðfest) - Verður á láni út tímabilið

Brighton er búið að ganga frá kaupum á gríska framherjanum Stefanos Tzimas. Þessi 19 ára leikmaður kemur til enska félagsins á um 21 milljón punda samkvæmt frétt BBC. Framherjinn er hjá Nürnberg í þýsku B-deildinni á láni frá PAOK og verður hann áfram hjá þýska félaginu út tímabilið og gengur í raðir Brighton í sumar. Samningur hans við Brighton gildir fram á sumarið 2030.

FRÉTTIR03.02.2025, 10:06

Marcus Edwards til Burnley (Staðfest)

Burnley hefur fengið Marcus Edwards frá Sporting Lissabon. Scott Parker, stjóri Burnley, var þjálfari hans í unglingaliði Tottenham á sínum tíma. Burnley er í baráttu í Championship-deildinni um að komast upp og er í þriðja sæti.

FRÉTTIR03.02.2025, 09:36

Petar Sucic til Inter í sumar (Staðfest)

Petar Sucic, miðjumaður Dinamo Zagreb, hefur staðfest að hann muni verða leikmaður ítalska stórliðsins Inter næsta sumar. Talað er um að Inter kaupi Sucic á 14 milljónir punda og kaupverðið gæti hækkað um 2,5 milljónir punda í viðbót eftir ákvæðum.

FRÉTTIR03.02.2025, 09:04

Villa lánar Nedeljkovic til Leipzig (Staðfest)

Hinn nítján ára gamli Kosta Nedeljkovic hefur gengið í raðir RB Leipzig á lánssamningi frá Aston Villa út tímabilið. Serbneski varnarmaðurinn hefur komið við sögu í fimm úrvalsdeildarleikjum á þessu tímabili. Hann varð þúsundasti leikmaðurinn til að spila aðalliðsleik fyrir aston Villa þegar hann kom af bekknum gegn West Ham í fyrstu umferð tímabilsins.

FRÉTTIR03.02.2025, 08:09

Ward-Prowse snýr aftur til West Ham (Staðfest)

West Ham hefur gert samkomulag við Nottingham Forest um að fá miðjumanninn James Ward-Prowse til baka úr láni. Ward-Prowse fékk lítið að spila og hefur komið við sögu í lokin á þremur leikjum síðan um jólin. Það var engin klásúla um að kalla Ward-Prowse til baka en félögin náðu samkomulagi. Graham Potter telur sig hafa not fyrir leikmanninn.

FRÉTTIR03.02.2025, 07:48

Morata til Galatasaray (Staðfest)

Tyrkneska félagið Galatasaray hefur fengið spænska framherjann Alvaro Morata á eins árs lánssamningi frá AC Milan. Samningurinn er til janúar 2026 en þá hefur tyrkneska félagið ákvæði um að framlengja lánstímann um sex mánuði eða kaupa leikmanninn alfarið.

FRÉTTIR02.02.2025, 10:35

Kevin Danso til Tottenham (Staðfest)

Tottenham Hotspur hefur fest kaup á austurríska miðverðinum Kevin Danso en hann kemur til félagsins frá Lens í Frakklandi. Hann kemur á láni út tímabilið og verða félagaskiptin gerð varanleg í sumar.

FRÉTTIR01.02.2025, 22:53

ÍA kaupir Hauk Andra frá Lille (Staðfest)

Haukur Andri Haraldsson er genginn aftur til liðs við ÍA frá Lille en Skagaliðið kaupir hann frá franska liðinu. Hann gerir þriggja ára samning við Skagamenn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.