Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25124 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.01.2025, 21:40

Muslic ráðinn til Plymouth (Staðfest)

Plymouth Argyle, botnlið ensku Championship deildarinnar, er búið að ráða Miron Muslic sem nýjan þjálfara eftir brottrekstur Wayne Rooney.

FRÉTTIR10.01.2025, 19:16

Júlli Magg í Elfsborg (Staðfest) - Einn dýrasti leikmaður í sögu félagsins

Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon er genginn í raðir Elfsborg frá Fredrikstad í Noregi. Hann hefur skrifað undir samning út 2029. Kaupverðið er um 1 milljón evra og gæti síðar meir hækkað upp í 1,5 milljónir evra. Allt í allt gætu þetta orðið um 225 milljónir íslenskra króna. Samkvæmt Transfermarkt hefur einungis einn kostað meira en það er Anders Svensson sem Elfsborg keypti frá Southampton fyrir tæpum 20 árum.

FRÉTTIR10.01.2025, 16:43

Galdur í Horsens (Staðfest)

Unglingalandsliðsmaðurinn Galdur Guðmundsson hefur verið seldur frá FC Kaupmannahöfn til Horsens. FCK staðfestir þetta með fréttatilkynningu í dag en Fótbolti.net sagði fyrst frá skiptunum síðasta þriðjudag. Galdur skrifar undir þriggja ára samning við þá gulu.

FRÉTTIR10.01.2025, 16:33

Viðar Örn framlengir við KA (Staðfest) - Laus úr banninu

KA hefur staðfest það að Viðar Örn Kjartansson verði með félaginu næsta sumar. Sagt var frá því á Fótbolta.net í gær að allt útlit væri fyrir að Viðar myndi leika áfram með Akureyrarfélaginu og nú er búið að staðfesta það. <i>„Eru þetta ákaflega góðar fréttir en Viðar er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og sýndi hann gæði sín með KA á síðustu leiktíð,"</I> segir í tilkynningu frá KA um að Viðar hafi gert nýjan samning.

FRÉTTIR10.01.2025, 16:20

Hjalti Sig gerði þriggja ára samning við KR (Staðfest)

KR hefur loksins staðfest komu Hjalta Sigurðssonar til félagsins. Fótbolti.net sagði fyrst frá því í ágúst síðastliðnum að hann væri á leið heim í Vesturbæinn. Hjalti skrifar undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt.

FRÉTTIR10.01.2025, 16:13

Hilmir Rafn í Viking (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson er genginn í raðir Viking í Stafangri. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið en hann gekkst undir læknisskoðun fyrr í dag. <i>&bdquo;Það er mjög fínt að vera kominn hingað. Það hafa allir hjá félaginu tekið vel á móti mér,"</I> segir Hilmir.

FRÉTTIR09.01.2025, 19:30

Haller orðinn liðsfélagi Kolbeins (Staðfest)

Framherjinn Sebastien Haller er genginn til liðs við hollenska félagið Utrecht á láni frá Borussia Dortmund en þetta kemur fram í tilkynningu frá Utrecht í dag.

FRÉTTIR09.01.2025, 17:08

Everton búið að reka Dyche (Staðfest)

Everton er búið að reka Sean Dyche en liðið er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið. Hann var tæp tvö ár í starfi. Hann var látinn fara nokkrum tímum fyrir bikarleik gegn Peterborough sem fram fer í kvöld.

FRÉTTIR09.01.2025, 14:40

Edwards rekinn frá Luton (Staðfest)

Luton Town er búið að reka Rob Edwards eftir fjóra tapleiki í röð í Championship-deildinni. Þessi 42 ára stjóri tók við Luton í nóvember 2022 og stýrði liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í yfir 30 ár 2023.

FRÉTTIR09.01.2025, 13:13

Alex Þór heim í Stjörnuna (Staðfest)

Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson er genginn í raðir Stjörnunnar að nýju. Félagið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum áðan. Alex var sterklega orðaður við ÍA en er nú kominn aftur í Garðabæinn.

FRÉTTIR09.01.2025, 10:30

Emmanuel Agbadou í Wolves (Staðfest)

Wolves hefur keypt varnarmanninn Emmanuel Agbadou frá Reims í Frakklandi. Kaupverðið er um 20 milljónir evra. Félagið tilkynnti nýja leikmanninn í morgunsárið.

FRÉTTIR09.01.2025, 09:37

Luis Hasa til Napoli (Staðfest)

Napoli hefur fengið sóknarmiðjumanninn Luis Hasa frá Lecce. Eins og hefð er fyrir hjá Napoli þá tilkynnti forseti félagsins, Aurelio De Laurentiss, fyrstur frá kaupunum og skrifaði á samfélagsmiðla: 'Velkominn Luis!' Hasa kom til Lecce síðasta sumar á frjálsri sölu frá Juventus en Juve fær 30% af söluverðinu núna samkvæmt samkomulagi. Hasa hefur leikið fyrir öll yngri landslið Ítalíu og var ein af stjörnunum í U19 liðinu sem varð Evrópumeistari 2023. Hann er annar leikmaðurinn sem Antonio Conte og félagar í Napoli fá í glugganum en markvörðurinn Simone Scuffet kom í vikunni frá Cagliari. Napoli trónir á toppi ítölsku A-deildarinnar en stöðuna má sjá hér að neðan.

FRÉTTIR09.01.2025, 08:23

Potter kynntur hjá West Ham (Staðfest)

Hinn 49 ára gamli Graham Potter hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning sem stjóri West Ham. Hann tekur við af Julen Lopetegui sem var rekinn í gær, eftir sex mánuði við stjórnvölinn. Potter, sem var síðast hjá Chelsea áður en hann var rekinn í apríl 2023, tekur við West Ham í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er bara með sex sigra og er sjö stigum frá fallsvæðinu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.