FRÉTTIR28.10.2024, 20:39
Vicente Valor hefur ákveðið að gera ekki nýjan samning við ÍBV en þessi 26 ára spænski sóknarmiðjumaður var hjá Eyjaliðinu í eitt ár.
Hann var lykilmaður í liði ÍBV sem vann Lengjudeildina í sumar og tryggði sér þar með sæti í Bestu deildinni.
Hann skoraði átta mörk í tuttugu leikjum og var valinn í lið ársins í deildinni.
FRÉTTIR28.10.2024, 19:37
<p>Mario Balotelli er mættur aftur í efstu deild á Ítalíu og hefur skrifað undir samning við Genoa út tímabilið.</p>
FRÉTTIR28.10.2024, 11:52
Manchester United er búið að reka Erik ten Hag úr starfi. Hann hafði verið stjóri liðsins frá því að hann tók við vorið 2022.
United tilkynnti tíðindin rétt í þessu og kemur fram að Ruud van Nistelrooy, aðstoðarmaður Ten Hag, taki við til bráðabirgða.
FRÉTTIR27.10.2024, 15:45
Það verða þjálfaraskipti hjá kvennaliði Vals en Pétur Pétursson er hættur þjálfun liðsins. Undir stjórn Péturs vann Valur fjóra Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla en hann tók við liðinu árið 2017.
Í tilkynningu Vals segir að ekki sé ákveðið hvaða aðili muni taka við liðinu af Pétri en að ný stjórn vonist til þess að klára þau mál sem allra fyrst.
FRÉTTIR26.10.2024, 12:34
<p>Brynjar Gauti Guðjónsson yfirgefur Fram eftir tímabilið þegar samningur hans rennur út en félagið staðfesti þetta í dag.</p>
FRÉTTIR25.10.2024, 16:34
Hollywood-félagið Wrexham sem leikur í ensku C-deildinni hefur tilkynnt um komu Jóns Daða Böðvarssonar en íslenski sóknarmaðurinn hefur gert samning þar til í janúar.
Jón Daði er 32 ára og lék síðast fyrir Bolton en kemur til Wrexham á frjálsri sölu. Ef honum vegnar vel hjá Wrexham mun hann vafalítið fá lengri samning.
<i>„Það er frábært að vera hjá félagi eins og Wrexham. Allir þekkja söguna og það er mjög spennandi að vera hluti af þessu. Vonandi get ég hjálpað félaginu að ná frekari árangri,"</i> segir Jón Daði.
<i>„Það er gott að vera kominn aftur í klefann, ég saknaði þess. Ég held að konan mín hafi verið orðin brjáluð! Ég hef æft og reynt að halda mér í formi en það er gott að vera kominn aftur í umhverfi þar sem ég get unnið betur í líkamlega þættinum."</i>
<i>„Þetta snýst um að finna mig aftur á næstu mánuðum. Ég vil finna sjálfstraustið aftur, leggja mig fram fyirr félagið og sjá hvert það kemur mér."</i>
Wrexham er í öðru sæti ensku C-deildarinnar en félagið hefur farið upp um tvær deildir á síðustu tveimur árum eftir að Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eignuðust það.
FRÉTTIR24.10.2024, 20:29
Ítalski þjálfarinn Roberto Mancini er hættur með sádi-arabíska landsliðið aðeins ári eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning en þetta kemur fram í tilkynningu sádi-arabíska fótboltasambandsins í dag.
FRÉTTIR24.10.2024, 15:00
Selfoss tilkynnti í dag að Valdimar Jóhannsson væri að kveðja uppeldisfélagið og verður því ekki með Selfossi í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
FRÉTTIR23.10.2024, 15:16
Theodór Elmar Bjarnason hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og taka stöðu aðstoðarþjálfara hjá KR.
<i>„Ég legg skóna sáttur á hilluna eftir farsælan og ógleymanlegan feril. Ég hef fengið að upplifa ólíka menningarheima og geng sáttur frá borði. Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum, leikmönnum, þjálfurum, starfsmönnum og síðast en ekki síst fjölskyldu minni fyrir þolinmæðina og stuðninginn. Ég get ekki sagt annað en að ég sé spenntur fyrir komandi verkefnum,"</i> segir Theodór Elmar í tilkynningu KR.
Hann hefur spilað 120 leiki fyrir KR og skorað 12 mörk, auk þess hefur hann spilað 41 landsleik.
FRÉTTIR23.10.2024, 09:38
Jack Wilshere hefur yfirgefið Arsenal og er búinn að semja við Norwich.
Hann kemur inn í þjálfarateymið hjá aðalliði Norwich og mun vinna náið með stjóranum Johannes Hoff Thorup.
FRÉTTIR22.10.2024, 21:54
Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn sem nýr aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍBV og skrifar hann undir þriggja ára samning við félagið.
FRÉTTIR22.10.2024, 19:48
KR er búið að staðfesta félagaskipti Róberts Elísar Hlynssonar til félagsins frá ÍR.
FRÉTTIR20.10.2024, 09:00
Lára Kristín Pedersen hefur samið við belgíska félagið Club Brugge en hún skoraði sitt fyrsta mark í 2-1 sigri liðsins á Anderlecht í gær.
FRÉTTIR20.10.2024, 08:30
Markvörðurinn Sveinn Óli Guðnason er genginn í raðir Hauka frá Þrótti R.
FRÉTTIR18.10.2024, 21:03
Valur var ekki lengi að tilkynna hver tæki við markvarðarstöðunni af Fanneyju Ingu Birkisdóttur sem gekk í raðir Häcken í kvöld, en félagið hefur fengið Tinnu Brá Magnúsdóttir frá Fylki.
FRÉTTIR18.10.2024, 20:44
Sænska úrvalsdeildarfélagið Häcken hefur fest kaup á landsliðsmarkverðinum Fanneyju Ingu Birkisdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Varaformaður Vals segir félagið fá upphæð sem hafi aldrei áður sést í kvennafótboltanum á Íslandi.
FRÉTTIR17.10.2024, 18:22
<p>Ómar Björn Stefánsson er genginn til liðs við ÍA en hann kemur frá Fylki. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Skagamenn.</p>
FRÉTTIR17.10.2024, 16:00
Fjölnir tilkynnti í dag félagið hefði náð samkomulag við Mána Austmann Hilmarsson um framlengingu á samningi við félagið. Máni er nú samningsbundinn Fjölni út tímabilið 2026.
Sóknarmaðurinn átti nokkuð gott tímabil í Lengjudeildinni, skoraði tólf mörk og varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Mörkin komu hins vegar flest fyrri hluta tímabilsins, þá gekk Fjölni vel en liðinu gekk illa seinni hlutann og missti af tækifærinu að komast beint upp í Bestu deildina.
Fjölnir fór í umspilið og tapaði þar gegn Aftureldingu í undanúrslitum.
FRÉTTIR16.10.2024, 22:41
Árni Freyr Guðnason hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Fylkis en knattspyrnudeild félagsins greinir frá ráðningunni í kvöld. Árni gerir þriggja ára samning við Fylki.
FRÉTTIR16.10.2024, 09:20
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti landsliðsþjálfari Englands. Ráðningin á honum hefur verið staðfest en hann mun taka formlega við stjórn liðsins í janúar 2025.