Brynjar Gauti á förum frá Fram (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gauti Guðjónsson yfirgefur Fram eftir tímabilið þegar samningur hans rennur út en félagið staðfesti þetta í dag.
Brynjar Gauti er 32 ára gamall varnarmaður sem gekk til liðs við Fram árið 2022 frá Stjörnunni. Hann hefur leikið 49 leiki fyrir félagið.
Hann hefur komið við sögu átta leikjum í sumar og skorað eitt mark. Síðasti leikur Fram á tímabilinu er gegn KA á Lambhagavellinum klukkan 14 í dag.
„Eftir 49 leiki í bláu treyjunni kveðjum við hann nú með bestu óskum. Dyrnar í Úlfarsárdal verða alltaf opnar fyrir þér, Brynjar." Segir í tilkynningu frá Fram.



