Fotbolti.net
28.10.24 - 19:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Balotelli til Genoa (Staðfest)

Balotelli til Genoa (Staðfest)
Canon

Mynd: Genoa

Mario Balotelli er mættur aftur í efstu deild á Ítalíu og hefur skrifað undir samning við Genoa út tímabilið.

Þessi fyrrum framherji Inter, Man City, Liverpool og Milan hefur verið án félags síðan í byrjun sumars þegar hann yfirgaf tyrkneska félagið Adana Demirspor þegar samningur hans rann út.

Hann segist hafa fengið spennandi tilboð í sumar en vildi bíða og sjá hvort hann fengi tilboð úr ítölsku deildinni.

Balotelli er kallaður Super Mario en Genoa kynnti hann til leiks í dag með myndbandi af persónunni Super Mario.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.