Fotbolti.net
20.10.24 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Lára Kristín til Club Brugge (Staðfest) - Komin á blað

Lára Kristín Pedersen (númer 6) fagnar hér með liðsfélögum sínum

Lára Kristín Pedersen (númer 6) fagnar hér með liðsfélögum sínum

Canon

Mynd: Club YLA

Hertz
Lára Kristín Pedersen hefur samið við belgíska félagið Club Brugge en hún skoraði sitt fyrsta mark í 2-1 sigri liðsins á Anderlecht í gær.
Mosfellingurinn kom til félagsins á dögunum en hún lék síðast með Fortuna Sittard í Hollandi.

Hún var að spila annan leik sinn með Club Brugge í gær og skoraði jöfnunarmark liðsins í fyrri hálfleik.

Lára var á mála hjá Aftureldingu, Stjörnunni, Þór/KA, KR og Val á Íslandi en hún hefur einnig spilað erlendis með Sittard, Napoli og í bandaríska háskólaboltanum. Hún á 3 A-landsleiki að baki.

Club Brugge er í sjötta sæti deildarinnar með 9 stig eftir átta leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.