En-Nesyri til Fenerbahce (Staðfest)
Marokkóski framherjinn Youssef En-Nesyri er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Fenerbahce, þar sem hann mun leika undir stjórn José Mourinho.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24416 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Marokkóski framherjinn Youssef En-Nesyri er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Fenerbahce, þar sem hann mun leika undir stjórn José Mourinho.
Oliver McBurnie, betur þekktur sem Oli McBurnie, er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við spænska félagið Las Palmas.
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir hjá enska B-deildarfélaginu Plymouth Argyle. Hann er því aftur kominn undir stjórn Wayne Rooney, eftir að þeir unnu saman hjá DC United. Guðlaugur Victor er 33 ára og hefur leikið 44 landsleiki fyrir Ísland. Hann lék síðast fyrir Eupen í Belgíu en náði ekki að koma í veg fyrir fall liðsins úr belgísku úrvalsdeildinni.
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir er gengin í raðir HK og spilar með liðinu út tímabilið í Lengjudeildinni. Þegar sjö umferðir eru eftir af deildinni á HK raunhæfan möguleika á því að fara upp um deild og þangað er stefnan sett. Mónika er fædd árið 1998 og lék síðast á Íslandi sumarið 2020 þegar hún skoraði fimm mörk í fimm leikjum með Álftanesi í 2. deild. Hún er uppalin hjá Stjörnunni og hefur leikið með Skínanda, Álftanesi, ÍR og KR á sínum meistaraflokksferli á Íslandi. Móníka fór í nám eftir tímabilið 2018 og starfar í dag sem sjúkraþjálfari.
ÍA tilkynnti í dag að Hanne Hellinx væri gengin í raðir félagsins og hefði samið út tímabiið. Hanne er fædd árið 2002 og segir í tilkynningu ÍA að hún sé fjölhæfur leikmaður sem geti leyst allar stöður á miðju og vörn. Hanne er frá Belgíu og hefur leikið með Charleroi og Mechele í efstu deild heimalandsins.
Þær Dominique Bond-Flasza og Alia Skinner eru mættar í Fram og taka slaginn með liðinu út tímabilið. Alia er markvörður og Dominique er varnarmaður sem er í landsliði Jamaíku Hún er 27 ára og þekkir hún vel til á Íslandi því hún lék undir stjórn þjálfara Fram, Óskars Smára Haraldssonar, tímabilið 2021 og svo með Grindavík í Lengjudeildinni 2021. Fram er í 6. sæti Lengjudeildarinnar og á leik gegn ÍA í kvöld. Dominique er komin með leikheimild fyrir leikinn en ekki Alia.
Georg Ethan Guðjohnsen Mitchell fékk í gær félagaskipti í KFK frá Spáni. Hann tekur slaginn með KFK í 3. deildinni. Georg er fæddur árið 2003 sem fór á reynslu til Bolton í lok síðasta árs. Hann hefur spilað í utandeildinni á Englandi að undanförnu.
Hin 18 ára gamla Elfa Karen Magnúsdóttir er búin að skipta á milli botnliða Bestu deildarinnar.
Sádi-arabíska stórveldið Al-Ittihad er búið að festa kaup á franska kantmanninum Moussa Diaby og bætist hann við stjörnum prýddan leikmannahóp liðsins.
Grindavík er búið að næla sér í liðsstyrk úr 2. deildinni þar sem Daniel Arnaud Ndi, betur þekktur sem Dani Ndi, er genginn til liðs við félagið.
Tara Jónsdóttir er gengin í raðir Gróttu á láni frá Víkingi út tímabilið. Miðjumaðurinn Tara á að hjálpa Gróttu í baráttunni um sæti í efstu deild á komandi tímabili. Grótta er í 3. sæti, stigi á eftir Aftureldingu þegar sjö umferðir eru eftir. FHL situr á toppnum, átta stigum á undan Aftureldingu. Tara er fædd árið 2001 og hefur komið við sögu í átta leikjum með Víkingi á tímabilinu. Hún var ekki í leikmannahópnum þegar Víkingur lagði Þór/KA í síðustu umferð. Hún er komin með leikheimild með Gróttu og getur spilað gegn ÍBV á föstudag. Samningur hennar við Víking rennur út eftir næsta tímabil.
Reynsluboltinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur fengið félagaskipti frá ÍR í Hvíta riddarann. Börkur lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil þar sem hann fór upp með ÍR úr 2. deildinni. Nú er komið að átökum í 3. deildinni þar sem Hvíti riddarinn er sem stendur í botnsætinu.
Ítalska félagið Triestina er búið að gera þriggja ára samning við hinn 18 ára gamla Stíg Diljan Þórðarson sem kemur til félagsins úr röðum Benfica í Portúgal.
Tobias Thomsen, sem lék með KR tímabilin 2017, 2019 og fyrri hlutann 2020, hefur samið við portúgalska félagið Torreense. Hann lék einnig með Val á Íslandi, lék með liðinu tímabilið 2018. Hann varð Íslandsmeistari 2018 með Val og aftur 2019 með KR. Framherjinn var í aukahlutverki hjá Val, skoraði einungis eitt mark í 14 leikjum en skoraði sjö í 21 leik með KR tímabilið 2019. Alls skoraði hann 24 mörk í 73 leikjum í deild og bikar á Íslandi og tvö mörk í sjö Evrópuleikjum.
Salford hefur staðfest komu hins 24 ára gamla Ben Woodburn til félagsins. Woodburn er miðumaður og er yngsti markaskorari í sögu Liverpool. Hann hefur verið hjá Preston í tvö tímabil en söðlaði um þegar samningur hans rann út.
Njarðvík hefur fengið Símon Loga Thasaphong á láni frá Grindavík út tímabilið. Samningur Símonar við Grindavík rennur svo út eftir tímabilið. <b>Uppfært 18:07:</b> Símon kemur á láni en hefur samþykkt samning hjá Njarðvík sem gildir út tímabilið 2027. Símon er sóknarsinnaður leikmaður, getur spilað fremst á miðjunni, á kantinum og sem fremsti maður. Hann hefur komið við sögu í ellefu af þrettán leikjum Grindavíkur í sumar og því koma þessi tíðindi eilítið á óvart. Hann hefur skorað eitt mark í Lengjudeildinni í sumar. Hann var síðast í byrjunarliðinu í 3-1 sigri gegn ÍBV fyrir tæpum mánuði síðan
KR hefur keypt sóknarmanninn Önnu Maríu Bergþórsdóttir frá Fjölni en bæði þessi félög eru í 2. deild kvenna. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupverðið í kringum 500 þúsund krónur.
Grindavík hefur fengið góðan liðsstyrk í Lengjudeild kvenna því Jada Colbert er komin aftur til félagsins. Colbert spilaði með Grindavík í fyrra og var þá á bekknum í liði ársins. Eftir tímabilið fór hún til Kýpur en hún er núna mætt aftur til Íslands.
Stjarnan hefur samið við Jessicu Ayers um að leika með liðinu út tímabilið. Ayers er miðjumaður sem kemur til með að fylla í það skarð sem Caitlin Cosme skilur eftir sig hjá liðinu. Cosme gekk nýverið í raðir Nantes í Frakklandi eftir að hafa verið hjá Stjörnunni í hálft ár.
Leiknir hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Kári Steinn Hlífarsson er genginn í raðir félagsins. Samningur hans við Leikni gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Aftureldingu þar sem hann hefur verið síðan 2019. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en var í tvö ár í Garðabænum áður en hann fór svo í Mosó.