Gunnar Einarsson tekur við kvennaliði KR (Staðfest)
<p>Gunnar Einarsson hefur tekið við kvennaliði KR og semur út tímabilið 2025.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24432 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>Gunnar Einarsson hefur tekið við kvennaliði KR og semur út tímabilið 2025.</p>
<p>Pétur Bjarnason er genginn í raðir Vestra en þetta staðfesti félagið í dag.</p>
Birna Jóhannsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við HK í Lengjudeild kvenna eftir að hún lýkur háskólanámi í Bandaríkjunum í vor.
FH hefur tryggt sér afar efnilegan markvörð á lánssamningi frá Breiðabliki sem gildir út tímabilið.
Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að kaupa belgíska kantmanninn Cyril Ngonge frá Verona fyrir um 20 milljónir evra.
Arsenal er búið að lána framherjann Mika Biereth til Sturm Graz í Austurríki eftir að hann stóð sig frábærlega með Motherwell í Skotlandi á fyrri hluta tímabils.
Fram hefur tryggt sér Thelmu Lind Steinarsdóttur á lánssamningi frá Stjörnunni sem gildir út tímabilið.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er búið að endurkalla ítalska miðjumanninn Cesare Casadei aftur til sín eftir góða frammistöðu með Leicester City í toppbaráttu ensku Championship deildarinnar á fyrri hluta tímabils.
Spænska félagið Villarreal er búið að staðfesta komu Goncalo Guedes á lánssamningi frá Wolves sem gildir út tímabilið.
Pálmi Rafn Pálmason hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Gregg Ryder hjá KR.
Hildur Karítas Gunnarsdóttir er búin að framlengja samning sinn við Aftureldingu þar sem hún er í algjöru lykilhlutverki.
Ivan Perisic hefur yfirgefið Tottenham en hann er kominn heim til Króatíu og verður á lánssamningi hjá Hajduk Split út tímabilið. Samningu þessa fjölhæfa leikmanns við Tottenham rennur út í sumar og hefur hann því leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Perisic, sem er 34 ára, hefur verið á meiðslalistanum síðan í september.
Indriði Áki Þorláksson tilkynnti rétt í þessu að hann væri búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna. Indriði er 28 ára miðjumaður sem leikið hefur með ÍA, Val, Leikni, FH, Fram, Keflavík, Haukum, Kára og Víkingi Ólafsvík. Indriði var í lykilhlutverki þegar ÍA vann Lengjudeildina í fyrra og tryggði sér með því sæti í Bestu deildinni á komandi tímabili. Indriði lék 21 leik og skoraði tvö mörk. Hann var þar á undan hluti af liði Fram sem fór taplaust í gegnum Lengjudeildina tímabilið 2021 og hélt sér svo uppi á fyrsta tímabili í Bestu.
Selma Sól Magnúsdóttir var í morgun tilkynnt sem nýr leikmaður FC Nurnberg í Þýskalandi. Hún kemur til félagsins eftir að hafa spilað með Rosenborg í Noregi undanfarin ár. Selma er 25 ára íslensk landsliðskona sem varð bikarmeistari með Rosenborg á liðinni leiktíð. Hún lék alls 63 leiki með Rosenborg, skoraði átta mörk og lagði upp tólf. Hún er uppalin hjá Breiðabliki en hélt til Rosenborgar eftir tímabilið 2021. Hún á að baki 33 landsleiki og í þeim hefur hún skorað fjögur mörk og lagt upp tvö. Hjá Nurnberg verður Selma númer 37.
KSÍ hefur samið við Norðmanninn Age Hareide um framlengingu á samningi hans sem þjálfari A landsliðs karla. Samningurinn gildir út árið 2025 og í honum eru bæði uppsagnarákvæði og framlengingarákvæði. Uppsagnarákvæði er við lok Þjóðadeildarinnar 2024. Samningurinn framlengist sjálfkrafa ef Ísland er í umspili um sæti í lokakeppni HM 2026 og framlengist einnig sjálfkrafa ef Ísland kemst í lokakeppni HM 2026. Hareide tók við þjálfun A landsliðs karla í apríl á síðasta ári og stýrði liðinu í átta leikjum í undankeppni EM það ár og í tveimur vináttuleikjum í janúar á þessu ári. Framundan eru umspilsleikir í mars um sæti í lokakeppni EM 2024 þar sem Ísland mætir Ísrael, og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Bosníu-Hersegóvínu eða Úkraínu.
Steven Gerrard, þjálfari Al Ettifaq í Sádi-Arabíu, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2027.
Árbæingurinn Ari Leifsson hefur yfirgefið norska félagið Strömgodset en samningur hans við félagið rann út um áramótin.
Hollenska félagið Ajax hefur landað enska landsliðsmanninum Jordan Henderson á frjálsri sölu eftir að hann rifti samningi sínum við sádi-arabíska félagið Al Ettifaq.
Íslenski landsliðsmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er nú formlega genginn í raðir þýska B-deildarliðsins Hansa Rostock frá sænska félaginu Elfsborg.
Spænska félagið Real Sociedad kynnti í dag nýjan leikmenn en Sheraldo Becker er kominn til félagsins frá Union Berlín í Þýskalandi.