Fotbolti.net
20.01.24 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Thelma Lind aftur til Fram (Staðfest)

Thelma Lind aftur til Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Hertz
Fram hefur tryggt sér Thelmu Lind Steinarsdóttur á lánssamningi frá Stjörnunni sem gildir út tímabilið.
Thelma er 18 ára gömul og lék á láni með Fram í fyrra, þar sem hún gerði fína hluti með liðinu í Lengjudeildinni.

Hún passaði vel í hópinn í Úlfarsárdalnum og hefur þjálfarateymi Fram fengið ósk sína uppfyllta um að krækja aftur í Thelmu fyrir komandi leiktíð.

Thelma er sóknarleikmaður sem kom við sögu í 11 leikjum í Lengjudeildinni í fyrra.

„Thelma er sterk, hröð og með mikið markanef og á vafalaust eftir að gera góða hluti með liðinu í sumar. Við þökkum Stjörnunni fyrir lánið og kunnum vel að meta greiðvikni þeirra og góð vinnubrögð," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.