Cyril Ngonge til Napoli (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að kaupa belgíska kantmanninn Cyril Ngonge frá Verona fyrir um 20 milljónir evra.
Ngonge er fenginn til liðsins til að fylla í skarðið sem Eljif Elmas skildi eftir með brottför sinni til RB Leipzig.
Ngonge er hægri kantmaður að upplagi en hann er afar fjölhæfur og getur spilað hvar sem er í fremstu víglínu.
Hann er 23 ára gamall og mun berjast við Matteo Politano um byrjunarliðssæti úti á hægri kanti hjá Napoli, þó að mögulegt sé að hann fái fleiri tækifæri í holunni fyrir aftan fremsta sóknarmann.
Ngonge hefur skorað 6 mörk og gefið 2 stoðsendingar fyrir fallbaráttulið Verona í 19 deildarleikjum það sem af er tímabils.

From Belgium to Napoli. Welcome, Cyril! ????
— Official SSC Napoli (@en_sscnapoli) January 19, 2024
???? #ForzaNapoliSempre #FromNapolitotheWorld pic.twitter.com/AeHIIHX0iW

Mynd: EPA