Fotbolti.net
20.01.24 - 12:05
Aksentije Milisic

Gunnar Einarsson tekur við kvennaliði KR (Staðfest)

Gunnar Einarsson tekur við kvennaliði KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Gunnar Einarsson hefur tekið við kvennaliði KR og semur út tímabilið 2025.

Pálmi Rafn Pálmason hætti með liðið á dögunum og gerðist aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Gunnar hefur verið aðstoðarþjálfari kvennaliðsins undanfarna mánuði og er hann nú orðinn aðalþjálfari. Theodór Elmar Bjarnason verður Gunnari til aðstoðar.

KR mun leika í annari deildinni í sumar en fyrsti leikur liðsins verður gegn Einherja þann 11. maí á Meistaravöllum.

„Stjórn knattspyrnudeildar KR hefur ráðið Gunnar Einarsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna út keppnistímabilið 2025.
Gunnar hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarna mánuði og þekkir liðið og umhverfið vel. Gunnar spilaði fyrir KR þegar hann kom heim úr atvinnumennsku og varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með liðinu.
Gunnar er með þjálfaragráðu UEFA A og hefur mikla reynslu í þjálfun, m.a. hefur Gunnar þjálfað Víking og Leikni Reykjavík.
Aðstoðarþjálfari liðsins verður Theodór Elmar Bjarnason, Hildur Guðný Káradóttir mun sá um styrktarþjálfun og markmannsþjálfari er Jamie Brassington, en hann sér einnig um markmannsþjálfun meistaraflokks karla," segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.