Fotbolti.net
20.01.24 - 11:48
Aksentije Milisic

Pétur Bjarnason til Vestra (Staðfest)

Pétur Bjarnason til Vestra (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Bjarnason er genginn í raðir Vestra en þetta staðfesti félagið í dag.

Pétur er að snúa aftur heim en hann er uppalinn fyrir vestan. Hann flutti suður haustið 2022 og gekk í raðir Fylkis í Bestu deildinni þar sem hann spilaði 25 leiki og skoraði sex mörk á síðustu leiktíð.

Pétur var samningsbundinn Fylki en hann lét félagið vita að því að hann ætlaði sér að flytja aftur á Ísafjörð þar sem hann væri kominn með vinnu. Hann var í framtíðarplönum Fylkis eins og Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, sagði í viðtali við Fotbolta.net.

Upp kom sérstök staða á milli Fylkis og Vestra og var á tímabili ekki ljóst hvort Pétur myndi spila fótbolta í sumar. Nú hefur þetta allt verið klárað.

„Þetta er svolítið sérstök staða. Við vildum fá Pétur heim í glugganum, en Fylkismenn sögðu nei við okkur og við skildum það alveg. Svo kemur það upp að Pétur eignaðist barn, er að fara vinna fyrir vestan og vill koma heim aftur. Við seldum Pétur fyrir tíu mánuðum síðan, við buðumst til að borga Fylki sömu upphæð fyrir hann, en þeir vilja fá þrefalda upphæð fyrir hann. Við erum ekki þar," sagði Samúel Samúelsson sem er formaður meistaraflokksráðs Vestra, við Fotbolta.net í nóvember mánuði.

Félögin náð samkomulagi en Pétur hefur spilað 211 leiki og skorað 76 mörk fyrir Vestra og BÍ/Bolungarvík. Hann verður klár í slaginn í dag þegar Vestri mætir Stjörnunni í Þungavigtarbikarnum klukkan 14.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.