Fotbolti.net
19.01.24 - 22:44
Ívan Guðjón Baldursson

Casadei endurkallaður til Chelsea (Staðfest)

Casadei endurkallaður til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er búið að endurkalla ítalska miðjumanninn Cesare Casadei aftur til sín eftir góða frammistöðu með Leicester City í toppbaráttu ensku Championship deildarinnar á fyrri hluta tímabils.
Casadei var keyptur til Chelsea sumarið 2022 fyrir um 20 milljónir evra. Hann kom úr röðum Inter og var fyrst lánaður til Reading í janúar 2023 og svo til Leicester í ágúst.

Hann hefur reynst mikilvægur hlekkur í sterkum leikmannahópi Leicester og fær núna tækifæri með stórveldinu Chelsea.

Mauricio Pochettino vantar miðjumenn vegna meiðsla í leikmannahópi Chelsea og því hefur verið ákveðið að endurkalla Casadei úr láni til að nota hann á seinni hluta tímabils.

Casadei er 21 árs gamall og hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Ítalíu. Hann er samningsbundinn Chelsea þar til í júní 2028.

Leicester gerir nú allt í sínu valdi til að krækja í Stefano Sensi frá Inter. Sensi er gæðamikill miðjumaður sem hefur verið að glíma við leiðinleg meiðslavandræði.

Casadei endurkallaður til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.