Arsenal lánar Biereth til Sturm Graz (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Getty Images
Arsenal er búið að lána framherjann Mika Biereth til Sturm Graz í Austurríki eftir að hann stóð sig frábærlega með Motherwell í Skotlandi á fyrri hluta tímabils.
Biereth er tvítugur Dani sem skoraði 6 mörk í 11 deildarleikjum með Motherwell fyrir áramót.
Hann vakti athygli ýmissa félaga á sér og var sterklega orðaður við Sheffield Wednesday í Championship deildinni, en er farinn til Austurríkis í staðinn.
Sturm Graz fær Biereth á láni út tímabilið en þessi framherji á sjö leiki að baki fyrir U19 og U21 landslið Dana.
Sturm Graz er í öðru sæti austurrísku deildarinnar sem stendur, tveimur stigum á eftir toppliði RB Salzburg. Þar að auki er liðið með þátttökurétt í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar í vor, þar sem liðið byrjar á leikjum gegn Slovan Bratislava 15. og 22. febrúar.

TENGT EFNI
„Gríðarleg vonbrigði“ að Arsenal kallaði Danann til baka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð