Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24432 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.01.2024, 17:30

Agoumé frá Inter til Sevilla (Staðfest)

Lucien Agoumé hefur gengið í raðir Sevilla frá Inter. Um er að ræða lánssamning með ákvæði um að Sevilla geti keypt hann alfarið næsta sumar fyrir 8 milljónir evra, en þá hafi Inter möguleika á að kaupa hann til baka. Þessi 21 árs franski miðjumaður hefur aðeins spilað einn deildarleik með Inter á þessu tímabili, hann kom af bekknum í lokin í 4-0 sigri gegn Salernitana í september.

FRÉTTIR10.01.2024, 16:18

Ólsarar ná í tvo leikmenn að austan (Staðfest)

Þeir Dani Ndi og Ivan Moran eru gengnir til liðs við Víking Ólafsvík og munu spila með liðinu í 2. deildinni í sumar. Dani Ndi er 28 ára gamall kantmaður/sóknarsinnaður miðjumaður og kemur frá Kamerún. Hann lék með Hetti/Hugin í 2. deild seinasta sumar og þótti standa sig vel. Hann hefur mikla reynslu og hefur meðal annars spilað 21 leik í úrvalsdeildinni á Spáni með Sporting Gijon.

FRÉTTIR10.01.2024, 12:30

Freysi fær liðsstyrk frá Japan (Staðfest)

Belgíska félagið KVK Kortrijk hefur fengið liðsstyrk frá Japan því varnarmaðurinn Haruya Fujii er kominn á láni frá Nagoya Grampus út tímabilið. Freyr Alexandersson var ráðinn til félagsins fyrir viku síðan, hann var fenginn frá danska félaginu Lyngby. Framundan er fallbarátta, Kortrijk er í botnsæti deildarinnar eftir 20 umferðir. Tíu umferðir eru eftir af deildinni.

FRÉTTIR10.01.2024, 11:30

Carvalho mættur til Hull (Staðfest) - „Gæti ekki verið ánægðari“

Fabio Carvalho hefur gengið í raðir Hull City á lánssamningi frá Liverpool sem gildir út tímabilið. Þessi 21 árs leikmaður var hjá RB Leipzig á láni en Liverpool var ekki ánægt með lítinn spiltíma hans og kallaði hann til baka. Hull er sem stendur í sjöunda sæti Championship-deildarinnar.

FRÉTTIR09.01.2024, 19:10

Werner til liðs við Tottenham (Staðfest)

<p>Timo Werner er genginn til liðs við Tottenham á láni frá RB Leipzig en Tottenham hefur möguleika á því að festa kaup á honum í sumar.</p>

FRÉTTIR09.01.2024, 16:54

Stjáni Finnboga nýr markmannsþjálfari FH (Staðfest)

FH tilkynnti rétt í þessu að Kristján Finnbogason væri mættur aftur í Krikann. Hann tekur við sem markmannsþjálfari meistaraflokks karla. Kristján tekur við af Fjalari Þorgeirssyni en í gær var Fjalar kvaddur og tilkynnt að hann yrði ekki áfram. Fjalar hafði tilkynnt FH á dögunum að hann yrði ekki áfram hjá félaginu eftir að hafa verið þar í fjögur tímabil og unnið með fjölmörgum þjálfurum. Hann er í dag markmannsþjálfari A-landsliðs karla og yfirmarkmannsþjálfari yngri landsliða.

FRÉTTIR09.01.2024, 16:02

Eggert Aron til Elfsborg (Staðfest)

Elfsborg og Stjarnan tilkynntu rétt í þessu um félagaskipti leikmannsins en sænska félagið er að kaupa Eggert frá Stjörnunni. Eggert er nítján ára miðjumaður sem sterklega hefur verið orðaður við atvinnumennsku erlendis síðasta hálfa árið. Hann átti möguleika á því að fara erlendis í haust en kaus frekar að klára tímabilið á Íslandi. Hann átti frábært tímabil í Bestu deildinni á síðasta tímabili og var valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins. Hann var þá algör lykilmaður í U19 landsliðinu sem lék á lokamóti EM í fyrra. Í næstu viku gæti hann svo spilað sinn fyrsta A-landsleik því hann er í landsliðshópnum fyrir komandi vináttuleiki gegn Gvatemala og Hondúras.

FRÉTTIR09.01.2024, 13:30

Katla María til Svíþjóðar (Staðfest)

Katla María Þórðardóttir var í dag tilkynnt sem nýr leikmaður sænska félagsins Örebro. Hún er þriðji íslenski leikmaðurinn til að ganga í raðir kvennaliðsins á síðasta hálfa árinu. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir samdi við félagið í lok ágúst og í vetur samdi svo Selfyssingurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir við félagið. Katla kemur frá Selfossi þar sem hún hefur spilað síðustu tvö ár. Hún skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2025.

FRÉTTIR09.01.2024, 10:28

Þorvaldur býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ en þetta staðfesti hann í yfirlýsingu sem send er til fjölmiðla. Hann er annar aðilinn sem staðfestir framboð en hinn er Guðni Bergsson, fyrrum formaður sambandsins. Þorvaldur hefur víðtæka reynslu úr boltanum. Hann var landsliðsmaður og atvinnumaður og svo þjálfari í mörg ár. Þorvaldur starfar nú bak við tjöldin hjá Stjörnunni sem rekstarstjóri knattspyrnudeildarinnar. Þorvaldur var strax orðaður við formannsframboð eftir að Vanda Sigurgeirsdóttir tilkynnti það að hún myndi ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku. <i>„Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni,"</I> segir í tilkynningunni. Þann 24. febrúar fer ársþing KSÍ fram í íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsdárdal.

FRÉTTIR08.01.2024, 12:00

Breki yfirgefur ÍBV (Staðfest)

Breki Ómarsson hefur nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum við ÍBV og verður hann ekki áfram hjá félaginu. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en gat fengið sig lausan. Breki er 25 ára sóknarmaður sem uppalinn er í Vestmannaeyjum og hefur til þessa leikið allan sinn feril þar.

FRÉTTIR08.01.2024, 10:27

Mowbray tekur við af Rooney (Staðfest)

Birmingham hefur ráðið Tony Mowbray sem nýjan stjóra á tveggja og hálfs árs samningi, sex dögum eftir að félagið rak Wayne Rooney. Mowbray er margreyndur stjóri, 60 ára gamall, en var rekinn frá Sunderland þann 4. desember.

FRÉTTIR07.01.2024, 16:07

Jasmín Erla í Val (Staðfest)

<p>Jasmín Erla Ingadóttir er gengin til liðs við Val frá Stjörnunni en hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.