Jasmín Erla í Val (Staðfest)


Mynd: Valur


Mynd: Valur

Jasmín Erla Ingadóttir er gengin til liðs við Val frá Stjörnunni en hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Jasmín var frábær sumarið 2022 og var markadrottning Bestu deildarinnar með 11 mörk í 18 leikjum en hún skoraði aðeins fjögur mörk síðasta sumar.
Hún hefur leikið 177 leiki í efstu deild og skorað 47 mörk.
„Jasmín er frábær leikmaður sem kemur bæði með töfra í sóknarleikinn en einnig vinnusemi í varnarleikinn. Hún er með mikla reynslu úr Bestu deildinni sem mun klárlega hjálpa okkur í sumar,“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir einn af þjálfurum liðsins.
Jasmín er spennt fyrir verkefninu og stefnir á að berjast um titla og ná lengra í Evrópu með liðinu.






