Kehrer til Mónakó (Staðfest) - Gelson Martins til Olympiakos

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Getty Images

Mynd: EPA
AS Mónakó er búið að staðfesta félagsskipti Thilo Kehrer frá West Ham United.
Þessi þýski varnarmaður er ekki í byrjunarliðsáformum David Moyes og mun því leika í frönsku deildinni á lánssamningi út tímabilið.
Kehrer er 27 ára miðvörður sem getur einnig spilað sem hægri bakvörður eða sem varnartengiliður. Hann á 27 landsleiki að baki fyrir Þýskaland og spilaði 38 leiki með West Ham á síðustu leiktíð.
Hann hefur aðeins komið við sögu í 10 leikjum á yfirstandandi leiktíð og er samningsbundinn West Ham til 2026. Mónakó er með kaupmöguleika í lánssamningnum.
Kehrer er annar varnarmaðurinn sem Mónakó nælir sér í síðan félagið keypti Kassoum Ouattara af Amiens í byrjun nóvember.
Þá er Gelson Martins búinn að yfirgefa félagið eftir fimm ára dvöl í Mónakó. Þessi leikni kantmaður skoraði 5 mörk í 47 leikjum á síðustu leiktíð en er núna farinn til Olympiakos í Grikklandi.
Martins var orðaður við Nottingham Forest í desember en enska úrvalsdeildarfélagið er í eigu sömu aðila og Olympiakos.
Martins er 28 ára gamall og gerir tveggja og hálfs árs samning við Olympiakos. Hann spilaði 21 landsleik fyrir Portúgal frá 2016 til 2018 en hefur ekki komið við sögu síðan.
Hann lék fyrir Sporting CP í heimalandinu og Atlético Madrid á Spáni áður en hann skipti til Mónakó.

Our new no.5?#WelcomeKehrer pic.twitter.com/MipJx2qbbU
— AS Monaco EN (@AS_Monaco_EN) January 6, 2024

Mynd: EPA

Mynd: Getty Images