Stjáni Finnboga nýr markmannsþjálfari FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tilkynnti rétt í þessu að Kristján Finnbogason væri mættur aftur í Krikann. Hann tekur við sem markmannsþjálfari meistaraflokks karla.
Kristján tekur við af Fjalari Þorgeirssyni en í gær var Fjalar kvaddur og tilkynnt að hann yrði ekki áfram. Fjalar hafði tilkynnt FH á dögunum að hann yrði ekki áfram hjá félaginu eftir að hafa verið þar í fjögur tímabil og unnið með fjölmörgum þjálfurum. Hann er í dag markmannsþjálfari A-landsliðs karla og yfirmarkmannsþjálfari yngri landsliða.

Kristján þekkir vel til í Krikanum en hann lauk ferlinum sem varamarkvörður FH. Hann lagði hanskana á hilluna eftir tímabilið 2016 sem var hans þriðja ár í FH. Á þeim tíma kom hann við sögu í tveimur Evrópuleikjum, meistarakeppni KSÍ og einum bikarleik.
Hann hefur undanfarin ár verið marmannsþjálfari KR en hætti þar í haust. Á ferli sínum lék hann lengst af með KR en hann lék einnig með ÍA, Ayr United, Lommel, Gróttu og Fylki. Hann varð átta sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari á sínum ferli ásamt því að vinna 2. deildina með Gróttu tímabilið 2009. Þá lék hann 20 leiki fyrir A-landslið Íslands.
Hann var í áhugaverðu viðtali um ferilinn í Innkastinu árið 2015 og á dögunum valdi hann Draumaliðið sitt og fór yfir ferilinn í viðtali hjá Jóhanni Skúla.