Fotbolti.net
09.01.24 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Katla María til Svíþjóðar (Staðfest)

Katla María til Svíþjóðar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Katla María Þórðardóttir var í dag tilkynnt sem nýr leikmaður sænska félagsins Örebro. Hún er þriðji íslenski leikmaðurinn til að ganga í raðir kvennaliðsins á síðasta hálfa árinu. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir samdi við félagið í lok ágúst og í vetur samdi svo Selfyssingurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir við félagið.

Katla kemur frá Selfossi þar sem hún hefur spilað síðustu tvö ár. Hún skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2025.
Í tilkynningu Örebro segir að fyrirliði U23 landsliðs Íslands sé komin til félagsins. Hún er 22 ára og á að baki fjóra leiki fyrir U23 landsliðið eftir að hafa áður leikið 38 leiki fyrir unglingalandsliðin.

Hún er uppalin í Sandgerði, Víði og Keflavík og hefur einnig leikið með Fylki á sínum ferli. Hún kemur til Örebro eftir að félagið hafði selt miðjumann í burtu og vantaði púsl inn í hópinn. Þjálfarinn vildi fá inn leikmann sem væri öflugur í návígum, væri leiðtogi og væri leikmaður sem væri ungur og hægt að þróa.

Katla er fjölhæfur leikmaður sem Örebro gæti notað bæði sem djúpur miðjumaður og miðvörður.

„Ég hlakka til að flytja til Svíþjóðar. Ekki síst vegna þess að ég heyrði mjög góða hluti um deildina. Það verður auðvitað stórt skref fyrir mig að spila í svona erfiðri deild, á sama tíma hef ég heyrt það úr nokkrum áttum að KIF Örebro sé duglegt að þróa leikmenn og gefa ungum leikmönnum tækifæri til að taka þetta að sér. Þetta saman heillaði. Ég vona að þessi skipti gefi mér tækifæri til að þróast sem leikmaður og safna gagnlegri reynslu. Markmiðið er að koma mér á hæsta stigi sem leikmaður," sagði Katla María.



Þórðardætur eru alltaf saman - „Kötlu finnst ég svolítið erfið að búa með"
TENGT EFNI

Þórðardætur eru alltaf saman - „Kötlu finnst ég svolítið erfið að búa með"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.