Fotbolti.net
07.01.24 - 10:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kalajdzic til Frankfurt (Staðfest) - Á von á barni

Kalajdzic til Frankfurt (Staðfest) - Á von á barni
Canon

Mynd: EPA

Sasa Kalajdzic er genginn til liðs við Frankfurt á láni frá Wolves út tímabilið.

Þessi 26 ára gamli austurríski framherji gekk til liðs við Wolves frá Stuttgart fyrir síðasta tímabil en meiddist illa í sínum fyrsta leik og missti af öllu tímabilinu eftir það.

Hann hefur komið við sögu í 13 leikjum á þessari leiktíð en aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni.

Matt Hobbs yfirmaður fótboltamála hjá Wolves segir það mikilvægt fyrir Kalajdzic að klára félagaskiptin snemma.

„Konan hans á von á barni síðar í þessum mánuði svo ef hann var að fara þá var það eina rétta í stöðunni að klára það frá og leyfa þeim að koma sér fyrir og finna húsnæði og spítala til dæmis," sagði Hobbs.

„Hann er frábær manneskja. Hann er svekktur en æfir vel á hverjum degi með bros á vör. Það hefði ekki verið sanngjarnt að bíða með þetta á meðan við leitum af manni í hans stað þar sem hann ætlar sér að vinna sér sæti í landsliðshópnum fyrir EM og á von á barni."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.