Fotbolti.net
07.01.24 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson

Dorival Junior hættur með Sao Paulo (Staðfest) - Tekur við brasilíska landsliðinu

Dorival Junior hættur með Sao Paulo (Staðfest) - Tekur við brasilíska landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Dorival Junior er hættur þjálfun Sao Paulo í Brasilíu en þetta staðfestir félagið í tilkynningu sem var send út fyrir stuttu. Hann er að taka við brasilíska landsliðinu.
Á dögunum var Fernando Diniz látinn taka poka sinn hjá landsliðinu eftir slakan árangur í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Brasilíska fótboltasambandið var með hraðar hendur og sérstaklega í ljósi þess að Carlo Ancelotti framlengdi við Real Madrid.

Dorival Junior, sem hefur stýrt Sao Paulo við góðan orðstír, hætti með liðið í dag og er nú að ganga frá samningum við brasilíska fótboltasambandið.

Hann mun stýra Brasilíu áfram í undankeppni HM og einnig á sjálfu mótinu sem fer fram árið 2026.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.