Fotbolti.net
09.01.24 - 19:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Werner til liðs við Tottenham (Staðfest)

Werner til liðs við Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Timo Werner er genginn til liðs við Tottenham á láni frá RB Leipzig en Tottenham hefur möguleika á því að festa kaup á honum í sumar.

Werner gekk til liðs við Chelsea frá Leipzig árið 2020 en náði ekki að sanna sig í bláu treyjunni og snéri aftur til Leipzig tveimur árum síðar. Hann hefur ekki verið í náðinni á þessari leiktíð og aðeins komið við sögu í átta leikjum.

Talið er að Tottenham gæti fest kaup á honum í sumar fyrir 15 milljónir punda.

Tottenham sér fram á að nýta Werner til að leysa Son Heung-Min af á vinstri kanti þar sem hann er farinn á Asíumótið en hann getur einnig leyst framherjastöðuna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.