Fotbolti.net
07.01.24 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Napoli selur Elmas og kaupir Mazzocchi (Staðfest)

Napoli selur Elmas og kaupir Mazzocchi (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Napoli þurfa að styrkja leikmannahópinn sinn í janúar eftir slæmt gengi á fyrri hluta nýs tímabils.
Félagið er búið að krækja sér í öflugan vængbakvörð sem kemur úr röðum Salernitana, þar sem hann hefur verið lykilmaður síðustu tvö ár.

Hann heitir Pasquale Mazzocchi og er fæddur í Napolí, en er að spila fyrir félagið í fyrsta sinn eftir að hafa komið við hjá ýmsum öðrum félögum í ítalska boltanum.

Mazzocchi er 28 ára gamall og spilar sem hægri bakvörður að upplagi, en getur einnig spilað vinstra megin. Hann er sókndjarfur og hefur verið notaður sem vængbakvörður í 3-5-2 leikkerfi Salernitana.

Hann verður góð varaskeifa fyrir Giovanni Di Lorenzo sem er fyrirliði og lykilmaður.

Þá er Napoli búið að selja sóknartengiliðinn Eljif Elmas til RB Leipzig fyrir um 25 milljónir evra.

Elmas er 24 ára gamall og kom við sögu í 189 leikjum á fjóru og hálfu ári hjá Napoli.

Hann á 12 mörk í 56 landsleikjum fyrir Norður-Makedóníu.

Napoli selur Elmas og kaupir Mazzocchi (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.