Fotbolti.net
10.01.24 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Elín Björg heim í Hauka (Staðfest)

Mætt heim í Hauka.

Mætt heim í Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Hertz
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára.
Elín er í námi í Bandaríkjunum þar sem hún spilar fótbolta á skólastyrk og mun því ekki klára tímabilið með Haukum. Hún spilar fyrri hlutann og fer svo út fyrir seinni hluta sumarsins.

Elín Björg er uppalin í Haukum og spilaði síðast með félaginu í Lengjudeildinni sumarið 2020. Eftir það gekk hún til liðs við nágrannana í FH en er nú aftur komin heim á Ásvelli.

„Elín á að baki 102 leiki í meistaraflokki og hefur skorað 35 mörk og erum við í Haukum afar ánægð með að hún spili aftur í Haukatreyjunni á næsta tímabili til að hjálpa meistaraflokki kvenna að komast aftur í Lengjudeildina," segir í tilkynningu frá Haukum.

Haukar höfnuðu í þriðja sæti 2. deildar kvenna á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.