Fotbolti.net
10.01.24 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Carvalho mættur til Hull (Staðfest) - „Gæti ekki verið ánægðari“

Carvalho kemur á láni frá Liverpool.

Carvalho kemur á láni frá Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Fabio Carvalho hefur gengið í raðir Hull City á lánssamningi frá Liverpool sem gildir út tímabilið. Þessi 21 árs leikmaður var hjá RB Leipzig á láni en Liverpool var ekki ánægt með lítinn spiltíma hans og kallaði hann til baka.

Hull er sem stendur í sjöunda sæti Championship-deildarinnar.
„Ég gæti ekki verið ánægðari. Allir þekkja hvað Fabio getur gert og hvaða gæði hann hefur sem ungur leikmaður," segir Liam Rosenior, stjóri Hull.

„Fabio er spenntur fyrir því að koma hingað og ég er hæstánægður með að vinna með honum til loka tímabilsins. Tæknilega séð er hann framúrskarandi. Hann getur lagt upp, skorað, er hugaður og snöggur."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.