Fotbolti.net
10.01.24 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Agoumé frá Inter til Sevilla (Staðfest)

Lucien Agoumé.

Lucien Agoumé.

Canon

Mynd: Getty Images

Lucien Agoumé hefur gengið í raðir Sevilla frá Inter. Um er að ræða lánssamning með ákvæði um að Sevilla geti keypt hann alfarið næsta sumar fyrir 8 milljónir evra, en þá hafi Inter möguleika á að kaupa hann til baka.

Þessi 21 árs franski miðjumaður hefur aðeins spilað einn deildarleik með Inter á þessu tímabili, hann kom af bekknum í lokin í 4-0 sigri gegn Salernitana í september.
Agoumé kom til Inter frá Sochaux á 4,5 milljónir punda 2019. Hann lék bara fjóra aðalliðsleiki fyrir ítalska stórliðið en fór til Spezia, Brest og Troyes.

Hann lék fimmtán leiki með Troyes 2022-23 og hefur einnig leikið tvo leiki með U21 landsliði Frakklands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.