Fotbolti.net
09.01.24 - 18:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Robin Koch alfarið til liðs við Frankfurt (Staðfest)

Robin Koch alfarið til liðs við Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Robin Koch mun formlega ganga alfarið til liðs við Frankfurt í sumar frá Leeds United.

Þessi 27 ára gamli þýski varnarmaður gekk til liðs við Frankfurt á láni í sumar og hefur leikið 14 leiki í þýsku deildinni og skorað eitt mark.

Hann mun ganga alfarið til liðs við félagið í sumar þegar samningur hans við enska liðið rennur út. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Hann gekk til liðs við Leeds frá Freiburg árið 2020 og lék 77 leiki fyrir féalgið meðan liðið var í úrvalsdeildinni.

„Tíminn minn hjá Leeds var einn sá besti og mikilvægasti í mínu lífi. Ég náði í verðmæta reynslu fyrir ferilinn og lífið og eignaðist marga vini. Ég mun alltaf eiga jákvæðar minningar frá félagin og mun alltaf styðja það. Takk fyrir allt," skrifaði Koch á samfélagsmiðla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.