Freysi fær liðsstyrk frá Japan (Staðfest)

Mynd: Kortrijk

Mynd: Kortrijk
Belgíska félagið KVK Kortrijk hefur fengið liðsstyrk frá Japan því varnarmaðurinn Haruya Fujii er kominn á láni frá Nagoya Grampus út tímabilið.
Freyr Alexandersson var ráðinn til félagsins fyrir viku síðan, hann var fenginn frá danska félaginu Lyngby. Framundan er fallbarátta, Kortrijk er í botnsæti deildarinnar eftir 20 umferðir. Tíu umferðir eru eftir af deildinni.

TENGT EFNI
Freyr fékk góðar skýringar - „Slegið út af borðinu nokkrum sinnum"
Fujii er 23 ára og hefur verið í stóru hlutverki hjá Nagoya Grampus. Hann var kallaður inn í japanska landsliðið í fyrsta sinn í mars í fyrra og lék sinn fyrsta landsleik þann 1. janúar á þessu ári.
Kortrijk á möguleika á því að kaupa Fujii á meðan lánsdvölinni stendur.
Kortrijk á möguleika á því að kaupa Fujii á meðan lánsdvölinni stendur.