Middlesbrough fær Ayling á láni frá Leeds (Staðfest)

Mynd: Middlesbrough

Mynd: Middlesbrough
Enski hægri bakvörðurinn Luke Ayling er genginn í raðir Middlesbrough á láni frá Leeds United.
Ayling er 32 ára gamall og á að baki 268 leiki fyrir Leeds United í öllum keppnum.
Hann kom til félagsins frá Bristol City árið 2016 og var í lykilhlutverki er liðið kom sér upp í úrvalsdeildina árið 2020. Þar var hann meðal annars valinn besti leikmaður B-deildarinnar af stuðningsmönnum og var í liði ársins.
Samningur hans við Leeds rennur út eftir þetta tímabil og stendur ekki til að framlengja við hann.
Tækifæri Ayling á þessari leiktíð hafa verið af skornum skammti og ákvað hann því að færa sig um set en hann er genginn til liðs við Middlesbrough á láni út leiktíðina.
Middlesbrough er í 12. sæti B-deildarinnar og er þá komið í undanúrslit enska deildabikarsins en liðið vann Chelsea á dögunum, 1-0, í fyrri leik liðanna.

We've completed the signing of Luke Ayling on loan from Leeds United ??
— Middlesbrough FC (@Boro) January 10, 2024
Welcome to #Boro, @lukeayling_8! ?????? #UTB