Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25156 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.01.2024, 15:09

Alex Þór í KR (Staðfest)

Alex Þór Hauksson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður KR. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Öster þar sem samningur hans var útrunninn. Alex er Álftnesingur sem lék með Stjörnunni áður en hann hélt í atvinnumennsku eftir tímabilið 2020. Alex skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2026. <i>„Það er okkur sönn ánægja að bjóða Alex velkominn til KR. Við bindum miklar væntingar við hann og erum sannfærð um að karakter hans, leiðtogahæfileikar og hugarfar muni hjálpa liðinu okkar að komast í fremstu röð aftur. Koma Alex staðfestir að KR nær að laða að sér bestu leikmennina sem í boði eru og teflir fram sterku liði á komandi tímabili,"</I> segir Gregg Ryder í tilkynningu KR.

FRÉTTIR15.01.2024, 14:23

Murielle Tiernan í Fram (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Murielle Tiernan hefur samið við Fram út tímabilið og mun því leika með meistaraflokki kvenna í Lengjudeildinni í sumar. Frá þessu greinir félagið í tilkynningu sem birt var rétt í þessu. Hún mun spila frammi með Öldu Ólafsdóttur sem gekk í raðir Fram fyrr í vetur.

FRÉTTIR15.01.2024, 10:00

Túfa tekur við Skövde AIK (Staðfest)

Srdjan Tufegdzic, Túfa, heldur áfram að þjálfa í sænsku B-deildinni en hann hefur verið ráðinn til Skövde AIK. Túfa, sem er fyrrum þjálfari Grindavíkur og KA og var aðstoðarþjálfari Vals, var látinn fara frá Öster eftir síðasta tímabil. Skövde hafnaði í 13. sæti deildarinnar og vann í umspili um áframhaldandi veru í deildinni. Túfa gerði tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR14.01.2024, 18:04

Ída Marín í FH (Staðfest)

FH hefur gengið frá samningum við Ídu Marín Hermannsdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.

FRÉTTIR13.01.2024, 15:20

Arnór Gauti í Breiðablik (Staðfest)

<p>Arnór Gauti Jónsson er genginn í raðir Breiðabliks en þetta staðfesti félagið rétt í þessu. Arnór skrifar undir samning út tímabilið 2026.</p>

FRÉTTIR13.01.2024, 09:49

Birkir Már tekur slaginn með Val áfram (Staðfest)

Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson ætlar að taka eitt tímabil í viðbót með Val og spila með liðinu á komandi sumri. Í tilkynningu frá Val segir Birkir, sem verður 40 ára á árinu, að hann ætli að hjálpa liðinu að berjast um þá titla sem í boði eru hér á landi. <i>„Já þetta verður mitt síðasta tímabil með Val,“</i> segir Birkir Már sem er fluttur til Svíþjóðar með fjölskylduna. <i>„Við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna úti en mér finnst ég enn hafa nóg fram að færa sem fótboltamaður og því langar mig að spila á eins háu leveli og mögulegt er.“</i> <i>Hér að neðan má sjá tilkynningu Vals í heild sinni</i>

FRÉTTIR12.01.2024, 18:49

Valdimar Ingi í Þrótt V. (Staðfest)

Kantmaðurinn knái Valdimar Ingi Jónsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Vogum og gæti reynst gríðarlega mikilvægur í toppbaráttu 2. deildar á komandi leiktíð.

FRÉTTIR12.01.2024, 17:30

Coventry til Charlton (Staðfest)

Charlton Athletic hefur keypt Conor Coventry frá West Ham en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára miðjumaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarliðið.

FRÉTTIR12.01.2024, 16:25

Ingibjörg til Duisburg (Staðfest)

Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Duisburg sem gildir til næsta sumars. Hún kemur til Duisburg frá Noregsmeisturum Vålerenga. Ingibjörg hafði verið með bestu leikmönnum norsku deildarinnar frá því kom frá Djurgården í Svíþjóð árið 2019.

FRÉTTIR12.01.2024, 11:35

Liverpool lánar Chambers til Wigan (Staðfest)

Wigan Athletic hefur fengið varnarmanninn Luke Chambers lánaðan frá Liverpool út tímabilið. Chambers er nítján ára gamall og hefur komið við sögu í fjórum aðalliðsleikjum fyrir Liverpool á tímabilinu, þar á meðal í tveimur í Evrópudeildum.

FRÉTTIR12.01.2024, 11:03

Jakob Franz gerir fjögurra ára samning við Val (Staðfest)

Jakob Franz Pálsson hefur skrifað undir samning við Val. Frá þessu greinir félagið rétt í þessu. Jakob sem fæddur er árið 2003 kemur til Valsmanna frá Venezia á Ítalíu en hann lék með KR í Bestu deildinni síðasta sumar. Valur og Venezia komust að samkomulagi um að Jakob yrði leikmaður Vals og er samningurinn til fjögurra ára.

FRÉTTIR12.01.2024, 10:30

Maatsen kominn á lán til Dortmund (Staðfest) - Framlengdi við Chelsea

Varnarmaðurinn Ian Maatsen er kominn til Borussia Dortmund í Þýskalandi, þar sem hann verður á láni út tímabilið. Áður en Maatsen undirritaði lánssamninginn þá framlengdi hann samning sinn við Chelsea til 2026. Þessi 21 árs leikmaður hefur komið við sögu í 15 leikjum fyrir Chelsea á tímabilinu en aðeins þrisvar í byrjunarliðinu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.