Valdimar Ingi í Þrótt V. (Staðfest)

Mynd: Þróttur Vogum

Mynd: Þróttur Vogum
Kantmaðurinn knái Valdimar Ingi Jónsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Vogum og gæti reynst gríðarlega mikilvægur í toppbaráttu 2. deildar á komandi leiktíð.
Valdimar Ingi er fæddur 1998 og hefur spilað með Fjölni og ÍR að undanförnu, auk þess að hafa spilað leiki með Víkingi R. og Leikni F.
Valdimar á aðeins 27 leiki að baki í 2. deild á Íslandi, en hann býr yfir mestri reynslu úr Lengjudeildinni, næst efstu deild, þar sem hann á 7 mörk í 69 leikjum.
Valdimar var mikið frá vegna meiðsla í fyrra en sumarið 2022 spilaði hann 15 leiki með Fjölni í Lengjudeildinni.
Þróttur endaði í 4. sæti 2. deildar í fyrra, þremur stigum eftir ÍR sem komst upp um deild.