Karitas framlengir við Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karitas Tómasdóttir er búin að semja við Breiðablik eftir að hafa runnið út á gamla samningi sínum við félagið í haust.
Karitas sleit hásin síðasta sumar og var frá keppni seinni hluta tímabilsins, en hún var einn af bestu leikmönnum Bestu deildar kvenna fyrir meiðslin.
Karitas er 28 ára miðjumaður með 9 A-landsleiki að baki. Hún skoraði 6 mörk í 16 deildarleikjum með Blikum sumarið 2022.
Hún gerir eins árs samning við Breiðablik, sem er að eltast við sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan 2020. Valur hefur unnið Íslandsmótið þrjú ár í röð síðan Blikar unnu síðast.

Færum ykkur fleiri frábærar fréttir, leikmaðurinn öflugi Karitas Tómasdóttir framlengir við Breiðablik út árið 2024???? Karitas hefur spilað 71 leik og skorað 20 mörk.
— Breiðablik FC (@BreidablikFC) January 12, 2024
Öflugur miðjumaður hefur verið liðinu gríðarlega mikilvæg, gleðitíðindi að hún taki slaginn með okkur í sumar???? pic.twitter.com/HnVhfZHb7r