Birkir Már tekur slaginn með Val áfram (Staðfest)

Birkir Már verður 40 ára í nóvember á þessu ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pederson og Birkir faðmast.

Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson ætlar að taka eitt tímabil í viðbót með Val og spila með liðinu á komandi sumri. Í tilkynningu frá Val segir Birkir, sem verður 40 ára á árinu, að hann ætli að hjálpa liðinu að berjast um þá titla sem í boði eru hér á landi.
„Já þetta verður mitt síðasta tímabil með Val,“ segir Birkir Már sem er fluttur til Svíþjóðar með fjölskylduna.
„Við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna úti en mér finnst ég enn hafa nóg fram að færa sem fótboltamaður og því langar mig að spila á eins háu leveli og mögulegt er.“
Hér að neðan má sjá tilkynningu Vals í heild sinni

Síðasti dans Birkis Más á Hlíðarenda
Þann 2. júní á hinu mjög svo ómerkilega ári 2003 tapaði Valur 0-1 fyrir Þrótti fyrir framan 750 áhorfendur á Valsvellinum að Hlíðarenda í Landsbankadeild karla. Í hugum flestra er þetta leikur sem seint fer í sögubækurnar nema þá kannski fyrir þá staðreynd að á 77. mínútu kom 18 ára gamall strákur úr Hlíðunum, Birkir Már Sævarsson, inn fyrir Valsmenn. Birkir skipti við Hjalta Þór Vignisson, síðar bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar og kom sér fyrir á hægri vængnum - þar sem honum hefur liðið afskaplega vel allar götur síðan.
282 KSÍ-leikjum, 103 landsleikjum, 30 mörkum og atvinnumennsku í bæði Noregi og Svíþjóð hefur Birkir Már ákveðið að taka eitt tímabil með okkur í viðbót.
Knattspyrnudeild Vals og Birkir Már skrifuðu undir samning í dag sem gildir út árið 2024. Birkir verður fertugur í nóvember.
En verður þetta síðasta tímabil Birkis með Val – síðasti dansinn?
„Já þetta verður mitt síðasta tímabil með Val,“ segir Birkir Már sem er fluttur til Svíþjóðar með fjölskylduna.
„Við erum búin að koma okkur vel fyrir hérna úti en mér finnst ég enn hafa nóg fram að færa sem fótboltamaður og því langar mig að spila á eins háu leveli og mögulegt er.“
Sú staðreynd að Valur tekur þátt í Evrópukeppni skipti Birki máli við þessa ákvörðun auk þess sem hann telur liðið eigi alla möguleika á því að berjast um sigur í bæði deild og bikar.
„Það er ástæðan fyrir því að mig langaði að koma heim og taka síðasta dansinn.“
Birkir segir hópinn líta vel út enda séu frábærir leikmenn í öllum stöðum – „og yfirleitt fleiri en einn í hverri stöðu.“
Og hann segist sannfærður um að hópurinn geti barist á öllum vígstöðvum til loka tímabils.
„En til þess að taka titlana þurfum við að æfa eins og menn og við þurfum að vera heppnir þegar kemur að meiðslum. Það má samt ekki gleyma því að við erum með frábæran styrktarþjálfara og frábæran sjúkraþjálfara. Ég hef trú á því að þetta geri það að verkum að menn standist mesta álagið sem fylgir því að fara langt í öllum keppnum.“
Börkur Edvardsson formaður knattspyrnudeildar Vals segir það aldrei hafa verið vafa í huga Valsmanna að framlengja við Birki og sjá hann taka síðasta dansinn að Hlíðarenda.
„Birkir er að leggja mikið á sig til þess að taka slaginn með okkur í sumar og við kunnum virkilega að meta það. Hann er ekki bara goðsögn innan félagsins heldur er hann einfaldlega leikmaður í hæsta gæðaflokki sem við teljum okkur þurfa til þess að sækja þessa titla. Ég get ekki beðið eftir því að sjá Vindinn þjóta upp og niður kantinn enn eitt sumarið,“ segir Börkur Edvardsson formaður knattspyrnudeildar Vals.
„Svo á hann það líka bara skilið að Valsmenn fjölmenni á völlinn í sumar og sjái hann spila sína síðustu leiki með Val.“