Fotbolti.net
14.01.24 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Krunic frá Milan til Fenerbahce (Staðfest)

Krunic frá Milan til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Fenerbahce

Bosníumaðurinn Rade Krunic er genginn til liðs við Fenerbahce frá Milan.
Þessi þrítugi miðjumaður kemur til tyrkneska félagsins á láni frá Milan en Fenerbahce mun ganga frá kaupunum í sumar og er kaupverðið talið nema um 4,5 milljónum evra.

Krunic spilaði fjögur tímabil með Milan og varð meðal annars deildarmeistari fyrir tveimur árum.

Hann mun nú hefja nýja vegferð með Fenerbahce, sem er í efsta sæti tyrknesku deildarinnar, tveimur stigum á undan erkifjendum sínum í Galatasaray.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.