Fotbolti.net
13.01.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tindastóll fær bandarískan leikmann (Staðfest) - Monica áfram í markinu

Monica Wilhelm

Monica Wilhelm

Canon

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Hertz

Tindastóll hefur nælt í Gabrielle Johnson en hún kemur úr ameríska háskólanum Virginia Tech.

„Að skrifa undir atvinnumannasamning á Íslandi hjá Tindastól er eitt það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég er þakklát fyrir óbilandi stuðning og ráðleggingar frá fjölskyldu minni, vinum, þjálfurum og liðsfélögum. Mig hefur dreymt um að spila atvinnuknattspyrnu síðan ég var 8 ára. Allar fórnirnar, minningarnar, áskoranirnar og gleðistundirnar komu mér á þennan stað. Það er ótrúlegt að segja að draumur minn sé að rætast," sagði Gabby, eins og hún er klölluð, í viðtali á heimasíðu Virginia Tech.

Þá hefur markvörðurinn Monica Wilhelm skrifað undir nýjan samning við félagið en hún lék 18 leiki með liðinu sem hafnaði í efsta sæti neðri hlutans í Bestu deildinni síðasta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.