Kári Sigfússon til Keflavíkur (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Sigfússon er genginn í raðir Keflavíkur í Lengjudeildinni en þetta staðfesti félagið í dag.
Kári er fæddur árið 2002 og kemur til liðsins frá Þrótti Vogum þar sem hann spilaði fjórtán leiki og skoraði tíu mörk í annari deildinni.
Kári, sem er uppalinn hjá Fylki, er vængmaður og mun hann því taka slaginn með Keflavík í næstefstu deild. Keflavík féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð þar sem liðið hafnaði í neðsta sæti deildarinnar.
Kári hefur einnig leikið með Elliða og Gróttu á sínum ferli.





