Fotbolti.net
12.01.24 - 11:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jakob Franz gerir fjögurra ára samning við Val (Staðfest)

Jakob Franz gerir fjögurra ára samning við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Jakob Franz Pálsson hefur skrifað undir samning við Val. Frá þessu greinir félagið rétt í þessu. Jakob sem fæddur er árið 2003 kemur til Valsmanna frá Venezia á Ítalíu en hann lék með KR í Bestu deildinni síðasta sumar. Valur og Venezia komust að samkomulagi um að Jakob yrði leikmaður Vals og er samningurinn til fjögurra ára.
„Jakob Franz er þannig leikmaður að þegar við sáum að það var möguleiki að fá hann vorum við ekki í neinum vafa. Hann er í grunninn bakvörður en getur leyst fleiri stöður t.d. í hjarta varnarinnar og sem djúpur á miðjunni, ekkert ósvipað því hlutverki sem Hlynur Freyr sinnti hjá okkur á síðasta tímabili. Þrátt fyrir ungan aldur er Jakob með heilt tímabil í efstu deild með KR þar sem hann spilaði frábærlega. Jakob Franz gæti orðið lykilmaður hjá okkur næstu árin,“ segir þjálfarinn Arnar Grétarsson í tilkynningu félagsins.

Duglegur og kraftmikill leikmaður
Jakob er uppalinn hjá Þór á Akureyri, á 51 leik í meistaraflokki og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Hann hefur verið hluti af sterku U-21 árs landsliði Íslands undanfarið.

„Umhverfið hjá Val er þannig að ég trúi því að ég geti haldið áfram að bæta mig sem leikmann og þróast í rétta átt. Hérna eru gæða leikmenn í öllum stöðum bæði inni á vellinum og í þjálfarateyminu,“ segir Jakob sem er með skýr markmið.

„Markmiðið er auðvitað alltaf að vinna og ég tel okkur klárlega vera með hópinn í að gera vel í sumar og svo viljum við líka standa okkur vel í Evrópu. Fyrir mig persónulega þá vil ég bæta mig og verða betri með hverjum leiknum og gera allt sem ég get til þess að skila góðum úrslitum.“

Aðspurður hvernig hann myndi lýsa sér sem leikmanni segir Jakob:

„Ég er duglegur og kraftmikill leikmaður sem gefst aldrei upp. Ég mun koma með mikla orku inn í liðið og á völlinn. Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímum hjá Val.“

Jakob er þriðji uppaldi Þórsarinn í leikmannahópi Vals því fyrir voru þar Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Birkir Heimisson. Jakob er fimmti leikmaðurinn sem Valur krækir í í vetur.

Komnir
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá Þór
Gísli Laxdal Unnarsson frá ÍA
Jakob Franz Pálsson frá Venezia
Stefán Þór Ágústsson frá Selfossi
Þorsteinn Aron Antonsson frá Selfossi
Arnór Ingi Kristinsson frá Leikni (var á láni)
Ólafur Flóki Stephensen frá Grindavík (var á láni)

Farnir
Andri Rúnar Bjarnason í Vestra
Haukur Páll Sigurðsson orðinn aðstoðarþjálfari
Hlynur Freyr Karlsson til Haugesund
Sveinn Sigurður Jóhannesson
Guy Smit (var á láni hjá ÍBV)

Samningslausir
Birkir Már Sævarsson
Jakob á að baki sjö leiki fyrir U21 landsliðið.

Jakob á að baki sjö leiki fyrir U21 landsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.