Coventry til Charlton (Staðfest)

Coventry í leik með U21 landsliði Írlands gegn Íslandi 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Charlton Athletic hefur keypt Conor Coventry frá West Ham en kaupverð er ekki gefið upp.
Þessi 23 ára miðjumaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarliðið.

Coventry lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik á síðasta tímabili en hann þekkir Michael Appleton stjóra Charlton þar sem hann lék undir hans stjórn á lánssamningi hjá Lincoln.
Appleton segist hæstánægður með að fá Coventry og lýsir honum sem góðum sendingaleikmanni með góða tækni og þá sé harka í honum.
Coventry lék fimm leiki fyrir West Ham í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili, þegar liðið fór alla leið og vann keppnina.