Arnór Gauti í Breiðablik (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Gauti Jónsson er genginn í raðir Breiðabliks en þetta staðfesti félagið rétt í þessu. Arnór skrifar undir samning út tímabilið 2026.
Arnór Gauti er 21 árs djúpur miðjumaður en hann kemur frá Fylki þar sem hann var algjör lykilmaður. Kappinn á að baki einn landsleik fyrir U21 árs lið Íslands.
Arnór varð samningslaus um áramótin en hann hafði mikið verið orðaður við Val áður en Breiðablik mætti. Arnór er uppalinn hjá Aftureldingu.
Breiðablik mætir FH í fyrstu umferð Bestu deildar karla þann 8. apríl.





