Ingibjörg til Duisburg (Staðfest)

Ingibjörg Sigurðardóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ingibjörg Sigurðardóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Duisburg sem gildir til næsta sumars.
Hún kemur til Duisburg frá Noregsmeisturum Vålerenga. Ingibjörg hafði verið með bestu leikmönnum norsku deildarinnar frá því kom frá Djurgården í Svíþjóð árið 2019.

Á fyrsta tímabilinu vann hún bæði deild- og bikar, auk þess sem hún var valin besti leikmaður norsku deildarinnar. Hún vann síðan deildina á síðasta tímabili, en þrátt fyrir magnaða frammistöðu á fjórum árum sínum hjá félaginu var henni ekki boðinn nýr samningur.
Núna hefur hin 26 ára gamla Ingibjörg skrifað undir stutta samning við Duisburg sem er í fallbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni. Liðið er á botninum með aðeins tvö stig eftir tíu leiki.
„Inga er mjög reynd, mikilvægur hluti af íslenska landsliðinu og hún gjörsamlega hatar að tapa. Sem miðvörður þá kemur hún með það sem við þurfum. Það er ánægjulegt að hún hafi valið okkur," sagði Thomas Gerstner, þjálfari Duisburg, eftir undirskrift.
Ingibjörg segist sjálf spennt fyrir því að spila í þýsku úrvalsdeildinni og ætlar hún að hjálpa liðinu að halda sér uppi.